Bókasafn

Bókasafn

Bókasafn

Bókasafnið er til húsa í Nýheimum en rekur auk þess útibú í Hofgarði í Öræfum og á Hrollaugsstöðum í Suðursveit.

Hægt er að panta bækur símleiðis í síma 470-8050 eða í tölvupósti menningarmidstod@hornafjordur.is.

Lesstofa bókasafnsins
Lesstofan er opin á sama tíma og bókasafnið. Aðstaðan er opin þeim sem vilja njóta næðis við lestur og skriftir. Í lesstofunni gefst gestum safnsins tækifæri til að nota handbækur og annað efni sem ekki er ætlað til útláns.

Sögustund (september - maí)
Á fimmtudögum kl. 14:15 til 14:45 er börnum á aldrinum 3 - 6 ára boðið að taka þátt í sögustund.  Lesnar eru sögur, sungin barnalög, auk þess sem ýmislegt óvænt og skemmtilegt er á dagskrá.

Bókasafn FAS og Heppuskóla
Bókasafnið er skólabókasafn Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu

Nánari upplýsingar um störf safnsins er að finna í Ársskýrslu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.


Opnunartími Bókasafns í Nýheimum

Vetrar opnun
M
ánudaga      frá kl.  9.00-17.00
Þriðjudaga      frá kl.  9.00-17.00
Miðvikudaga    frá kl.  9.00-17.00
Fimmtudaga    frá kl.  9.00-17.00
Föstudaga      frá kl. 11.00-17.00
   
Laugardaga     frá kl. 11.00-14.00

Sumar opnun 

Mánudaga      frá kl.  10.00-16.00
Þriðjudaga      frá kl.  10.00-16.00
Miðvikudaga   frá kl.  10.00-16.00
Fimmtudaga   frá kl.  10.00-16.00
Föstudaga      frá kl. 10.00-16.00
   
Laugardaga          lokað


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica