Pakkhús
Sjóminjasafnið
Sjóminjasafnið

Pakkhús

Saga hússins 
Pakkhúsið var byggt upp úr viðum ýmissa eldri húsa laust eftir 1930. Það var reist af kaupfélaginu og stækkað fljótlega í þá mynd sem húsið er í dag.  Eins og nafnið gefur til kynna var húsið aðallega notað sem geymslu- og vöruhús og voru mjölsekkir og aðrar plássfrekar vörur geymdar þar á loftinu. Þó kom fyrir að húsið var tekið undir samkomur og fundi og var þá sekkjavörunni staflað meðfram veggjum svo gólfpláss skapaðist. Sagnir eru meðal annars til um að Jónas Jónson frá Hriflu hafi haldið stjórnmálafund á Pakkhúsloftinu.  Meðal þeirra sem unnu í Pakkhúsinu var Guðni Jónsson í Heklu faðir Svavars listmálara og var hann utanbúðarmaður í fjöldamörg ár. Árið 1990 gaf Kaupfélag Austur-Skaftfellinga Byggðasafni Austur-Skaftafellssýslu húsið og hefur safnið unnið að endurbótum þess síðan.

Sjóminjasafn 
Sumarið 1997 var húsið opnað af forseta Íslands sem sjóminjasafn með sýningar- og veitingaaðstöðu. Sjóminjasafnið er á neðri hæð. Þar eru meðal annars til sýnis þrír bátar, veiðarfæri og munir tengdir skipsströndum. Meðal annarra muna á sjóminjasafninu er forláta trésmíðabekkur sem á sér allmerkilega sögu. Árið 1873 fórust 5 franskar skútur við Horn (bæinn Horn sem stendur undir Vestra-Horni). Um 100 franskir sjómenn fórust en 31 var bjargað og þeir hýstir á Horni í 15 daga og raunar 2 þeir mest slösuðu fram eftir vori. Árið eftir, 1874, sigldi franskt herskip heim undir Horn og reyndist það vera komið til að færa Hornsbændum, þeim Eyjólfi Sigurðssyni og Sigurði Snjólfssyni bjargarlaun. Þeir fengu saman sexæring, báðir heiðurspening úr gulli og heiðursskjal auk þess sem Eyjólfur Sigurðsson timburmaður fékk trésmíðabekk og tilheyrandi hefla og tól með honum. Ljósrit af heiðursskjali og mynd af heiðurspeningi Eyjólfs er að finna í safninu ásamt smíðaáhöldunum.

Sýningar
Pakkhúsið hentar vel til sýninga, tónleika og annarra menningarviðburða. Góð lýsing er í húsinu, hljóðkerfi, sýningartjald og ýmis konar búnaður til smærri og stærri viðburða. Húsið tekur vel 60-80 manns í sæti.e


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica