Listasafn
Listasafn
Um 250 listaverk eru nú í eigu sveitarfélagsins og stofnana þess. Þar á meðal er ómetanlegt safn verka eftir Svavar Guðnason og fleiri hornfirska málara svo sem Bjarna Guðmundsson, Höskuld Björnsson, Jón Þorleifsson, Rafn Eiríksson og Bjarna Henriksson. Enginn sérhannaður sýningarsalur er til staðar í byggðarlaginu en ágæt sýningaraðstaða er orðin í Pakkhúsinu. Efniviður listasafnsins er að mestu leyti til sýnis í stofnunum sveitarfélagsins t.d. grunnskólum, áhaldahúsi, hjúkrunarheimili, ráðhúsi, bókasafni og Pakkhúsi.


