Sindra fréttir
3. flokkur karla Íslandsmeistarar
3. flokkur karla Íslandsmeistarar
3. flokkur karla Íslandsmeistarar

03.08.2010 Sindra fréttir

Allir á völlinn

 

Nú er farið styttast í annan endann á þessu tímabili hjá okkur Sindramönnum og framundan er blóðug barátta um sæti í úrslitum 3.deildar. Við erum að berjast við Árborg, KFG og Álftanes um tvö efstu sætin sem skila okkur í þessi 8 liða úrslit. Sindri er með ungt lið í mótun en þó höfum við stefnt að því leynt og ljóst í sumar að komast í úrslitin. Hingað til höfum við spilað mjög vel löngum köflum en þó dottið niður í algjöra meðalmennsku þess á milli sem er þó algjörlega eðlilegt þegar að þú ert með ungt lið í höndunum.

Næstu ár eru spennandi fyrir Sindra og alla Hornfirðinga því að það eru að koma upp óvenjulega mikið af mjög hæfileikaríkum drengjum. Nokkrir þeirra eru þegar farnir að láta vel að sér kveða og eru að verða lykilleikmenn í liðinu. Við ætlum að hlúa vel að þessum efnivið þannig á komandi árum verðum við með lið sem allir Hornfirðingar koma til með að verða stoltir af.

Á laugardaginn fer fram einn af þremur úrslitaleikjum sem við eigum eftir. KFG kemur þá í heimsókn til okkar en þeir eru sem stendur í öðru sæti. KFG er lið úr Garðabæ og er nokkur skonar varalið Stjörnunnar. Þjálfari þeirra er gamla landsliðskempan Lárus Guðmundsson. Við höfum tvisvar mætt þeim í ár og hafa liðin skilið jöfn í bæði skiptin, fyrst 3-3 í deildarbikarnum og svo 2-2 í fyrri leik liðanna í Garðabæ. Það er því ljóst að við eigum í vændum svakalegan úrslitaleik hér á Sindravöllum á laugardaginn kl 15:00

Stjórn og meistaraflokksráð ætla að búa til flotta umgjörð og stemningu í kringum þennan leik og vil ég því hvetja alla Hornfirðinga sem að vetlingi geta valdið að mæta á völlinn og styðja strákana í þessu stórverkefni. Ég sé fyrir mér fulla stúku rauða á litinn þar sem vel verður látið í sér heyra.

 

  Félag L U J T Mörk Net Stig
1 Árborg 11 9 1 1 33  -    6 27 28
2 KFG 11 7 3 1 25  -  12 13 24
3 Sindri 11 7 1 3 31  -  15 16 22
4 Álftanes 11 7 0 4 24  -  20 4 21
5 Björninn 11 4 1 6 14  -  15 -1 13
6 Markaregn 11 3 1 7 13  -  24 -11 10
7 KFR 11 1 2 8 10  -  24 -14 5
8 Hvíti riddarinn 11 1 1 9 12  -  46 -34 4

 

 

F.h mfl. karla

Óli Stefán Flóventsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica