Sindra fréttir
Norðurlandameistaramótið á Akureyri 2010
Norðurlandameistaramótið á Akureyri 2010
Sveinbjörg í stökki
Mynd 1 af 2
1 2

31.08.2010 Sindra fréttir

Sveinbjörg með silfur.

Keppendurnir frá USÚ stóðu sig mjög vel á Norðurlandameistaramótinu sem fram fór á Akureyri.

Sveinbjörg gerði sér lítið fyrir og nældi sér í silfur í langstökki með stökk upp á 5.76m. Hún var ein af fáum íslensku keppendana sem komust á pall. Sveinbjörg sannaði það að hún er með betri langstökkvurum norðurlanda í hennar flokki, en hún á samt eitt ár eftir í þessum flokki.
Einar Ásgeir varð 6. í 1500m, hann átti við ramman reip að draga þar sem keppendur voru 3 árum eldri en hann og í heimsklassa þrír þeirra tóku til að mynda þátt í heimsmeistaramóri unglinga í sumar. Einar var alveg við sitt besta og er hann mjög efnilegur og á framtíðina fyrir sér.
Sveinbjörg heldur til Svíþjóðar ásamt þjálfara sínum og keppir á sænska meistaramótinu í 7 þraut um næstu helgi. Það verður hennar síðasta mót sumarsins.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica