Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 207
207. fundur
Fundur í félagsmálaráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,þriðjudaginn 24. ágúst 2010 og hófst hann kl. 16:10
Fundinn sátu:
Snæfríður H. Svavarsd., Anna María Ríkharðsdóttir, Ásdís Ólafsdóttir, Óskar Arason, Sigurður Guðmundsson, Jón Kristján Rögnvaldsson,
Fundargerð ritaði: Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóri
Dagskrá:
1. 200709065 - Fjölskyldustefna Hornafjarðar
Farið yfir tilboð vegna útgáfu fjölskyldustefnu Hornafjarðar. Starfsmanni falið að ræða við BB Prentun og myndver um útgáfu.
2. 201008046 - Staða húsnæðismála á Hornafirði
Félagsmálaráð leggur til við bæjarráð að það láti vinna úttekt á stöðu húsnæðismála á Hornafirði í ljósi þeirrar eftirspurnar sem til staðar er. Undanfarin ár hefur fasteigna- og leigumarkaður á Hornafirði breyst talsvert. Færri eignir eru á sölu og íbúðir sem áður seldust hægt eru nú vinsælli til kaups. Sveitarfélagið hefur fækkað íbúðum í sinni eign umtalsvert og það dregið úr framboði á leigumarkaðnum. Hafa verður í huga í þessu samhengi að áður en sveitarfélagið hóf sölu á íbúðum í sinni eign voru þær allar í notkun. Félagsmálaráð telur mikilvægt að eftirfarandi verði m.a. kannað:
- Hversu margar íbúðir þarf sveitarfélagið að eiga, þá fyrir félagsleg úrræði og starfsfólk? Sveitarfélagið á ennþá fjölmargar íbúðir og er að mörgu leyti ráðandi um leiguverð á markaðnum.
- Hvaða skýringar eru á því að einstaklingar eða verktakar fari ekki af stað með byggingu leiguíbúða þegar eftirspurn er til staðar? Félagsmálaráð leggur til að skoðað verði leiguverð á hvern fm í sveitarfélaginu í samhengi við byggingarkostnað á hvern fm.
- Hversu mikil er eftirspurnin í raun? Hversu margir einstaklingar eru taldir bíða eftir húsnæði.
- Uppbygging verður á vegum Vatnajökulsþjóðgarðs á næstu árum, ekki síst í Skaftafelli. Með fjölgun heilsárstarfa á vegum þjóðgarðsins og fyrirtækja sem hyggjast vera með starfsmenn allt árið á svæðinu skapast þörf fyrir aukið húsnæði. Hvernig er hægt að bregðast við slíku?
- Ferðaþjónustu vex ásmegin í dreifbýli og nokkur fyrirtæki hafa rætt um að þörf er á húsnæði fyrir starfsfólk? Hvernig er hægt að glíma við þennan vanda?
- Hvaða leiðir er hægt að fara með uppbyggingu leiguíbúða. Nefnt hefur verið að sveitarfélagið geti byggt íbúðirnar, hægt væri að ráðast í aðgerðir í samvinnu sveitarfélags og verktaka eða að stofna sérstakt leigufélag um verkefnið. Hverjir eru kostir og gallar þessara leiða?
- Gerð var könnun á vegum HSSA á síðasta vori um húsnæðisþörf fyrir aldraða. Er hægt að nýta niðurstöður þeirrar könnunar við vinnu úttektarinnar? Félagsmálaráð telur að verkefnið sé brýnt og ráðast verði í það sem allra fyrst.
3. 201008041 - Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga
Upplýst um landsfund jafnréttisnefnda sveitarfélaga sem haldinn verður í Ketilhúsinu v. Kaupvangsstræti á Akureyri dagana 10. og 11. september nk.
4. 201008053 - Framkvæmdaáætlun barnaverndarnefndar 2010-2014
Skv. 9.gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 skulu barnaverndarnefndir leggja fram framkvæmdaáætlun fyrir hvert kjörtímabil. Umræða um áætlunina og undirbúningur hafinn að vinnu áætlunarinnar. Starfsmanni falið að undirbúa fyrstu drög.
5. 201008054 - Neyðarvistun skv. 84.gr. barnaverndarlaga
Skv. 84.gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 skal barnaverndarnefnd hafa tiltækt úrræði, s.s. vistheimili, til þess að veita börnum móttöku í bráðatilvikum. Rætt var um útfærslu og hugsanleg úrræði til að uppfylla nauðsynleg skilyrði laganna. Starfsmanni falið að vinna úr fengnum tillögum.
6. 201008055 - Félagslegar íbúðir
Tveimur íbúðum á Höfn úthlutað. Fært í trúnaðarmálabók.
7. 201008052 - Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.
8. 201005026 - Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.
9. 200804012 - Erindi einstaklingsmál
Fært í trúnaðarmálabók.


