Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 53
53. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 2. febrúar, kl. 20:10 2004.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarsson, Ásgeir Gunnarsson, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarsson, og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Reikningsyfirlit 2003 og samanburður milli 2001-2003
Albert kynnti helstu samanburðartölur á rauntölum miðað við fjárhagsáætlun 2003 og fór yfir samanburð milli áranna 2001 – 2003.
Fyrirspurn kom um greiðslu á fasteignagjöldum vegna Miklagarðs. Sigfús benti á að umsjón hafnarstarfsmanna vegna Miklagarðs kæmi ekki fram.
3. Hafnaframkvæmdir
Albert gerði grein fyrir bréfi Siglingastofnunar dags. 10. janúar 2004 um hafnaframkvæmdir 2004 og bréf bæjarstjóra um Hafnaáætlun 2005-2008 dags. 30. desember 2003.
Rætt var um framkvæmdir vegna Krosseyjarbryggju, en tilboð vegna stálþilsefnis verða opnuð í febrúar. Í framhaldi af því verður farið af stað með útboð vegna framkvæmdanna.
4. Hafna- og siglingavernd
Albert kynnti stöðuna á verkefninu en því miðar ágætlega áfram. Búið er að semja áhættumat og skila því og verndaráætlun til Siglingastofnunar.
5. Ósk um leyfi til uppskipunar og geymslu túnáburðar á svæði Hornafjarðarhafnar
Albert gerði grein fyrir bréfi frá Sláturfélagi Suðurlands dags. 28. janúar 2004, þar sem óskað er eftir að skipa upp og geyma tímabundið allt að 1.100 tonn af túnábúrði.
Erindið samþykkt, en hafnarstjórn ýtrekar að góð umgengni verði um svæðið.
6. Til kynningar:
•Bréf Hafnasambands sveitarfélaga dags. 31. desember 2003 varðandi kotsnað við vigtun sjávarafla og skil á upplýsingum.
• Bréf Fiskistofu dags. 21. janúar 2004 um línuveiðar og fl.
• Tölvubréf Siglingastofnunar dags.. 8. janúar 2004 um bjölluskápa.
Erindinu vísað til starfsmanna hafnarinnar
• Bréf Frumherja dags. 22. janúar 2004 um skoðanir á skipum undir 400 brúttótonnum.
• Bréf frá Bláfánanum á Íslandi dags. 24. janúar 2004.
7. Önnur mál
Samþykkt var að fundir Hafnarstjórnar yrðu framvegis á miðvikudögum, fyrsta dag hvers mánaðar, til reynslu fyrst um sinn.
Helgi Már kynnti síðustu mælingu á Grynnslunum frá 28. janúar s.l.
Ari hvatti til að málefni hafnarinnar væri gerð sýnilegri á heimasíðunni og fól hafnarstjóra að koma með tillögur þar um á næsta fundi.
Fundi slitið 21:35
Albert Eymundsson
Sigfús Harðarsson
Helgi Már Pálsson
Ari Jónsson
Reynir Arnarsson
Ásgeir Gunnarsson


