Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 53
53 fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss miðvikudaginn 3. mars, kl. 20:00 2004.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarsson, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson og Friðþór Harðarson. Sömuleiðis starfsmenn Albert Eymundsson, Sigfús Harðarsson, og Valur Sveinsson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Þriggja ára áætlun
Albert fór yfir helstu atriði áætlunarinnar sem samþykkja þarf formlega vegna reglna um reiknisskil sveitarfélaga og senda til félagsmálaráðuneytisins.
Hafnarstjórn fagnar framlagningu þriggja ára áætlaunar. Hafnarstjórn bendir á að verulegra framkvæmda sé þörf á næstu árum og vísar í því sambandi til fyrirliggjandi framkvæmdaáætlunar Hornafjarðarhafnar 2004-2008. Jafnframt bendir hafnastjórn á nauðsyn þess að framkvæmdir hverju sinni séu í samræmi við fjárhagsgetu hafnarsjóðs.
3. Siglingavernd
Valur kynnti stöðu verkefnisins en því miðar ágætlega áfram. Athugasemdir hafa komið frá Siglingastofnun sem búið er að taka tillit til og skila aftur.
Ari gerði grein fyrir athugasemdu sínum og áherslun gagnvart frumvarpi til laga um siglingavernd sem stjórnarmaður í hafnarsambandinu.
4. Til kynningar:
Hafnarsambandsþing 2004, bréf Hafnarsambands sveitarfélaga
dags. 20 febrúar 2004
5. Önnur mál
Bréf frá Skipaskoðun ehf. þar sem starfsemi fyrirtækisins er kynnt vegna breytinga um lögbundar skoðanir á skipum.
Albert kynnti stöðu mála vegna fyrihugaðrar ráðstefnu 5.- 8. júní 2005. Skipulagning er komin vel á veg. Verið er að prenta dreifibæklinga sem fara munu víða um heim og heimsíða ráðstefnunar verður opnuð fljótlega. Samgönguráðherra og væntanlegur forsætisráðherra hafa báðir tekið vel í að taka þátt í ráðstefnunni ásamt þekktum fyrirlesurum.
Albert gerði grein fyrir viðtölum við Gísla Viggósson um Grynnslin
Albert kynnti námskeið sem haldið er í Englandi vegna dýptarmælinga eins og framkvæmdar eru með Birni lóðs. Vignir Júlíusson hefur sýnt mikinn áhuga á að sækja námskeiðið en hann hefur sérhæft sig í þessum mælingum. Hafnarstjórn er jákvæð gagnvart ferð á þetta námskeið og felur hafnarstjóra að finna leiðir til fjármögnunar.
Fundi slitið 21:45
Albert Eymundsson
Sigfús Harðarsson
Ari Jónsson
Reynir Arnarsson
Ásgeir Gunnarsson
Valur Sveinsson
Halldór Tjörvi Einarsson
Friðþór Harðarson


