Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 56
56. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss miðvikudaginn 12. maí 2004, kl. 20:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Reynir Arnarson, Friðþór Harðarson og Halldór Tjörvi Einarsson.
Sömuleiðis starfsmenn Albert Eymundsson, Sigfús Harðarsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Gísli Viggósson starfsmaður Siglingastofnunar
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Ársreikningar
Harnarstjóri fylgdi ársreikninginum úr hlaði og greindir frá helstu tölum.
Tekjur eru tæpar 75,2 milljónir. Gjöldin eru rúmar 63 milljónir. Fjármagnsgjöld eru um 3,5 milljónir, þannig að tekjur umfram gjöld eru um 8,6 milljón.
Einnig kom eftirfarandi fram í endurskoðunarskýrslu Sigurðar Tómassonar
Rekstrarhagnaður ársins 2003 nam um 8,6 millj.króna. Áætlun hafði ráðgert tap af rekstri tæpar 2 millj. króna. Umtalsverð gjaldskrárhækkun á miðju ári varð til þess að tekjur reyndust mun meiri en áætlun gerði ráð fyrir auk þess sem viðskipti hafa aukist. Rekstrarkostnaður hækkaði hlutfallslega mun minna en tekjurnar auk þess sem upptaka virðisaukaskatts á miðju ári og endurgreiðsla á innskatti í kjölfarið varð til kostnaðarlækkunar á ýmsum liðum. Heildarlaunakostnaður varð 24,1 millj krónur en áætlun hafði gert ráð fyrir 22,4 millj. króna. Vaxtagjöld nettó reyndust vera 3,5 milljónir króna eins og áætlun hafði gert ráð fyrir.
Eins og áður eru öll viðskipti Hafnarsjóðs færð í viðskiptareikning við Aðalsjóð sveitarfélagsins og eru viðskiptin vaxtareiknuð miðað við reikningsstöðu í lok hvers mánaðar. Í upphafi árs var skuld hafnarsjóðs við Aðalsjóð kr. 17,2 millj en var í árslokin kr. 17,3 millj að teknu tilliti til reiknaðra vaxta sem námu kr. 1,6 millj.
Hafnarstjórn samþykkir samhljóða ársreikninginn.
3. Bréf Siglingarstofnunar þar sem áhættumat hafnarinnar er staðfest.
Til kynningar
4. Bréf Hafnarsambands sveitarfélaga 7. maí um túlkun á 4. mgr. 17. gr. Hafnarlaga nr. 61/2003
Til kynningar
5. Málefni Hornafjarðarhafnar
Gísli Viggósson fór yfir ýmis mál s.s. frekari framkvæmdir og þróun innan hafnarinnar, breytingar við garðinn á Suðurfjöru og jafnframt aðgerðir á Grynnslum. M.a. kom fram í máli hans að eftir viðræður við hafnsögumenn og Gunnar Ásgeirsson hjá Skinney- Þinganesi að ekki megi færa rennuna nær Hvanney og færðu þeir fyrir því sín rök sem Gísli greindi frá. Miklar umræður urðu um þessi mál og mörg sjónarmið komu fram. Hafnarstjórn felur Siglingastofnun í samráði við hlutaðeigandi aðila að staðsetja fyrirhugaða rennu á Grynnslunum ásamt leiðarmerkjum. Gísli upplýsti að við skoðun í dag kom í ljós að rof er að myndast í garðinn á Suðurfjörum. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra í samvinnu við starfsmenn Siglingastofnunar að vinna að endurbótum á garðinum ásamt aðgerðum til að hindra sandburð að vestan inn í innsiglingarennuna m.a. með því að koma verkefinu inn á samgönguáætlun. Hafnarstjórn óskar eftir því við Siglingastofnun að skoða skipulag hafnarmannvirkja innan hafnarinnar sjálfrar með tilliti til breyttra þarfa og hugsanlegra framkvæmda.
6. Önnur mál
Bæjarstjóri óskaði eftir tilnefningu í viðræðuhóp um hugsanlegt samstarf við Djúpavogshöfn. Hafnarstjórn tilnefnir Ara Jónsson en áður hafði bæjarráð tilnefnd Reynir Arnarson.
Ari þakkaði Gísla komuna og hans framlag á fundinum
Fundi slitið 22:22
Albert Eymundsson
Sigfús Harðarsson
Ásta H. Guðmundsdóttir
Ari Jónsson
Friðþór Harðarson
Ásgeir Gunnarsson
Halldór Tjörvi Einarsson
Reynir Arnarson


