Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 60
60 fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss miðvikudaginn 10. ágúst 2004, kl. 12:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarson og Friðrik Ingvaldsson. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Helgi Már Pálsson, Vignir Jóhannson, Sigfús Harðarsson og Kristján Helgason Siglingastofnun
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Framkvæmdir við höfnina
Helgi Már gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við Krosseyjarþilið. Verkið er um vikuá eftir áætlun en verklok eru eftir sem áður miðuð við 15. september n.k.
Einnig gerði hann grein fyrir verkstöðu við upptökubraut vegna smábátabryggju, en þeim framkvæmdum er að mestu lokið.
Kristján gerði grein fyrir hugmyndum vegna nýrrar bryggju í Óslandi vestan Loðnubryggjunnar. Útfærslunar verða skoðaðar nánar og kostnaður vegna þeirra áætlaður og málið síðan tekið fyrir að nýju.
3. Dæling á Grynnslunum
Kristján gerði grein fyrir drögum að verksamningi við Gáma- og tækjaleigu Austurlands, Reyðarfirði, en samkvæmt þeim er fyrirhugað að byrja dælingu á Grynnslunum í lok ágúst og vinna síðan allan septembermánuð. Áætlað magn er um 45.000 rúmmetrar.
Hafnarstjórn er sammála um að ganga til samninga við Gáma- og tækjaleigu Austurlands, Reyðarfirði.
4. Gjaldtaka vegna hafnarverndar
Albert kynnti hugmyndir að gjaldtöku vegna kostnaðar við hafnarvernd. Óskað er eftir heildarkostnað vegna vinnu við verndaráætlun og auk þess nánari upplýsinga um breytilegan kostnað vegna hennar. Ákvörðun frestað til næsta fundar.
5. Fyrirspurn vegna olíugeymis á Austurfjörum
Bréf Hákonar Valimarssonar byggingarfulltrúa dags. 30. júlí s.l. vegna olíugeymis á Austurfjörum. Helgi Már upplýsti að eigandinn muni væntanlega fjarlægja þennan tank af staðnum í næsta mánuði.
6. Farmverndarfulltrúar ? kynning
Til kynningar.
7. Önnur mál
Ábending kom frá Reyni vegna umgengni við Fiskimjölsverksmiðjuna í Óslandi vegna mikillar ýldulyktar. Starfsmönnum er falið að koma þessum ábendingum til skila og gera kröfu um úrbætur.
Fundi slitið 13:25
Ari Jónsson Sigfús Harðarsson
Friðrik Ingvaldsson Helgi Már Pálsson
Reynir Arnarsson Albert Eymundsson
Vignir Jóhannson


