Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 67
67. fundur
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 67. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss miðvikudaginn 6. apríl 2005, kl. 20:00
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarson, Ásgeir Gunnarsson og Friðþór Harðarsson. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Vignir Júlíusson og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Staða framkvæmda
Albert gerði grein fyrir stöðu hönnunar á netagerðarbryggjunni í Óslandi. Lögð voru fram gögn frá Siglingastofnun sem gera ráð fyrir að um trébryggju verði að ræða að öllu leiti, en ekki burðarvirki úr stáli. Staðsetning bryggjunnar er utar en áður hefur verið kynnt ( sjá fax frá Siglingarstofnun dags. 6. apríl 2005 ).
Hafnarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við athugasemdir sem fram komu á fundinum
Helgi Már gerði grein fyrir framvindu verksins við Krosseyjarþilið, sem er að mestu leiti á áætlun þegar á heildina er litið. Heildarstaða verksins er um 18 % og greiddar hafa verið um 6.884 þkr.
Almennt var rætt um lagnir og lagnaleiðir í þekjuna og var starfsmönnum falið að kanna betur möguleika á olíulögn, ídráttarrörum og hvort nota eigi færanlegan gálga áfram á bryggjunni fyrir ísafgreiðslu.
Jafnfram var rætt um aukna sjálfvirkni á afgreiðslu á vatni, rafmagni og olíu. Hafnarstjóra falið að koma ofangreindum ábendingum á framfæri við Siglingastofnun.
3. Raforkusamningur
Hafnarstjóri kynnti tilboð frá Rarik vegna sölu á rafmagni. Um var að ræða samning til eins árs annarsvegar og til þriggja ára hinsvegar.
Samþykkt var að semja til eins árs.
4. Hafnarreglugerð
kynnti reglugerðina og verður hún tekin fyrir aftur til afgreiðslu.
5. Önnur mál
Hafnarstjóri ræddi um nýjar hugmyndir um garð út í Einholtskletta og dælingu á Grynnslunum. Hafnarstjórn ýtrekar fyrri samþykktir að tilraunadýpkun verði hraðað sem fyrst.
Hafnarstjóri kynnti væntanlega dagsrá á fyrirhugaðri ráðstefnu í byrjun júní.
Reynir ræddi um yfirborð á Álaugareyjarbryggjunni og óskaði eftir að kostnaður við yfirlögn á henni með malbiki yrði skoðaður
Ari gerði grein fyrir ósk um geymslusvæði á áburði í Óslandi frá Bjarna Hákonarsyni umboðsaðila. Samþykkt.
Vignir spurðist fyri um úttekt á dæluskipinu Soffíu. Albert upplýsti að málið væri í skoðun.
Reynir velti upp staðsetningu innan hafnarinnar fyrir nýtt björgunarskip sem nú er væntanlegt. Starfsmenn vinna að lausn á málinu. Hafnarstjóri kynnti ársreikning Hafnarssambandsins fyrir árið 2004
Ari fagnaði nýjum starfsháttum með rafrænu fundarboði
Fundi slitið kl. 22:45


