Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 72
72. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 27. desember 2005, kl. 12:00
Mætt voru: Reynir Arnarson, Friðrik Ingvaldsson, Sigurður Ólafsson og Halldór Tjörvi. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarson og Helgi Már Pálsson.
Í upphafi fundar gerði Albert grein fyrir því að Ari Jónsson hefur beðist lausnar frá setu í hafnarstjórn. Fundurinn kaus Reynir Arnarsson sem fundarstjóra.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Dæling innan hafnar.
Borist hefur óformleg ósk utanaðkomandi aðila um að taka að sér dýpkun innan hafnar í framtíðinni. Albert gerði grein fyrir viðræðum við Siglingastofnun vegna framhalds á dælingu innan hafnar ( minnisblað dags.12. des.sl. ). Rætt var um ástand og nauðsynlegar endurbætur á Soffíu, gerð grein fyrir nýjum lausnum og nýjum tækjum, leigu á búnaði tímabundið og möguleikum og framkvæmd á útboði. Rætt var um möguleika hafnarinnar að hugsanlegu útboði og endurskoðun á mannahaldi við höfnina ef til útboðs kæmi. Símafundur átti að vera með Sigurði Ás Grétarssyni, Siglingastofnun, en hann var veikur. Hafnarstjóra falið að hafa samband við Sigurð Ás og málið tekið fyrir að nýju.
3. Tilboð í Bátstangabryggju
Kynntar voru niðurstöður á tilboðum vegna Bátstangabryggju. Þrjú tilboð bárust og var tilboð frá Sveini Sighvatssyni lægst, kr. 43.386.290,- Kostnaðaráætlun var kr. 45.569.440,- Siglingastofnun hefur mælt með að tilboði Sveins verði tekið. Hafnarstjóra falið að ganga frá samning við Svein Sighvatsson.
4. Minnisblað dags. 12 des.s.l.
Áður hefur verið rætt um dýpkun innan hafnar og útboð vegna Bátstangabryggju. Rætt var um framhald vegna bryggju á Austurfjöru. Ekki er ljóst hvort framkvæmdin teljist styrkhæf. Starfsmenn Siglingatstofnunar eru væntanlegir eftir áramót til að meta staðsetningu bryggjunnar.
5. Önnur mál
Albert lagði fram bréf frá rannsóknarnefnd sjóslysa dags. 19. des. sl. vegna óhapps innan hafnar á Hafnarey SF 36. Til kynningar.
Fundi frestað kl. 13:10 Miðvikudagur 28. desember, kl. 17:00, fundi fram haldið. Mættir sömu og deginum áður auk Friðþórs Harðarsonar. Í símanum var Sigurður Ás Grétarsson, Siglingarstofnun. Á
dagskrá frá fyrri fundi var liður :
2. Dæling innan hafnar.
Albert lagði fram yfirlit fjármálastjóra á rekstri Soffíu frá árunum 1998 til og með 2005. Í máli Sigurðar Áss kom fram að í tilfelli sem þessu þ.e. áralangar hefðar og þeirra laga sem þá giltu þá hafi verið í lagi fyrir ríkið að semja við sveitarfélagið um að sjá um dýpkun innan hafnar. Ef um einkaaðila væri að ræða þá er þetta ekki lengur möguleiki og verk af þessari stærðargráðu þá útboðsskylt miðað við núgildandi lög. Hafnarstjórn er ekki heimilt að gera tilboð í verkið verði það boðið út. Ef lægsta boð er óhagstætt þá getur verið erfitt að hafna lægsta boði nema að í útboðsgögnum sé tilgreind að verkkaupi áskili sér rétt til hafna tilboðum sem fara yfir tilgreinda upphæð. Reyndar er unnt að hafna lægsta boði á grundvelli þess að það er óeðlilega hátt miðað við kostnaðaráætlun. Það er svo matsatriði hvað er óeðlilega hátt. Hafnarstjórn er sammála því að áfram skuli unnið að undirbúningi útboðs vegna dýpkunar innan hafnar. Stefnt skal að því að þessari vinnu verði lokið sem fyrst og í síðasta lagi fyrir janúarlok á næsta ári.
Fundi slitið 18:10


