Hafnarstjórn
Fundargerð Hafnarstjórnar 47
47. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss miðvikudaginn 11. júní, kl. 13:30.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarson, Friðþór Harðarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarson og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerðir
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 46. fundur 26.maí 2003.
Fundargerð samþykkt
2. Lóðarumsókn Salar ehf
• Mögulegar staðsetningar, sjá gögn
Farið var yfir framsettar tillögur frá tækni- og umhverfissviði ( HMP 06/2003 ) og var nefndin sammála því að ekki væri um staðsetningu út í Óslandi að ræða. Rætt var um svæðið sunna Álaugareyjar um kosti þess og galla.
Hafnarnefnd fagnar umsókninni og mælir með að þeim verði úthlutað lóð á svæði merkt A, þ.e. á Álaugarey þar sem áður stóðu olíugeymar Esso.
3. Önnur mál
Rætt var um að halda fund innar tíðar og ræða framkvæmdir og dælingu á þessu ári.
Fundi slitið 13:00
Ari Jónsson Albert Eymundsson
Friðþór Harðarsson Helgi Már Pálsson
Reynir Arnarson Sigfús Harðarson
Halldór Tjörvi Einarsson


