Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 84
84. fundur
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Árni Þorvaldsson, Halldór Tjörvi Einarsson og Páll Guðmundsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Helgi Már Pálsson Sigfús Harðarson og Vignir Júlíusson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir. Bent á að fundargerð 82. fundar hafi ekki enn birst á vefnum.
2. Dæling
Farið yfir stöðu á dælingu. Rætt um leigu á rörum í eigu hafnarinnar og vinnuframlagi starfsmanna hafnarinnar vegna dælingar Gáma- og tækjaleigunnar. Spurst fyrir um tryggingarmál hjá verktaka. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að leita eftir upplýsingum um þetta mál. Mikil umræða skapaðist um dælingarmál. Hafnarstjóra falið að ræða við Siglingastofnun og verktaka um dælingu.
3. Framkvæmdir á Bátstangabryggju
Lagt fram bréf frá Sveini Sighvatssyni, dags. 5. apríl 2006, varðandi breyttar forsendur við framkvæmdir á Bátstangabryggju. Hafnarstjóra falið að ræða við Siglingastofnun og verktaka og gera grein fyrir umræðum á fundinum.
4. Önnur mál
· Lagt fram bréf frá bæjarráði, dags. 11. september 2006, varðandi ósk um framkvæmdaleyfi frá Ómari Antonssyni um að opna námur á Austurfjörum. Hafnarstjórn samþykkir að taka málið upp þegar umsagnir Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits Austurlands liggja fyrir.
· Hafnarstjórn sammála um að hætt verði losun dælingarefnis í Mikleyjarálinn.
· Páll ítrekaði fyrirspurn varðandi málefni utanaðkomandi aðila um að landa afla hér á Höfn.
· Samþykkt að Reynir Arnarson, Halldór Tjörvi Einarsson, Páll Guðmundsson og Hjalti Þór Vignisson verði fulltrúar á Hafnasambandsþingi. Til vara Ásgeir Gunnarsson og Vignir Júlíusson.
Fundi slitið kl. 22:00


