Hafnarstjórn

Fundargerð hafnarstjórnar 86

86 fundur

Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 5. desember kl. 17:00.

Mætt voru:   Reynir Arnarson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Halldór Tjörvi Einarsson og Páll Guðmundsson.   Einnig: Hjalti Þór Vignisson og Sigfús Harðarson.

 

1. Fundargerð síðasta fundar

Engar athugasemdir.

 

2. Málefni Austurfjörubryggju

· Bréf Ómars Antonssonar, dags. 6. nóvember 2006.

Hafnarstjórn styður ósk Ómars til samgönguyfirvalda um fjárveitingu til uppbyggingar bryggjunnar.  Jafnframt undirstrikar Hafnarstjórn mikilvægi þess að samgönguyfirvöld veiti fjármuni til  stofndýpkunar í tengslum við þessar framkvæmdar og nauðsynlegrar viðhaldsdýpkunar.

Einnig var rætt um öryggismál við Austurfjörubryggju.  Samkvæmt hafnalögum er eigandi hafnar ábyrgur fyrir því að mannvirki, búnaður og rekstur hafnarinnar og mannvirkja innan hennar séu í samræmi við lög.  Siglingastofnun hins vegar hefur eftirlit með öryggisútbúnaði.  Kom fram í máli Hjalta að óskað hafi verið eftir úttekt á öryggismálum Austurfjörubryggju.

Páll spurðist fyrir um stál sem var í eigu hafnarinnar en var notað á Austurfjöru.  Hafnarstjóra falið að kanna málið.  Þá spurðist Páll fyrir um möl í eigu hafnarinnar sem seld hafði verið til Ómars Antonssonar vegna sölu hans á steypuefni.  Kom fram að rukkað hafi verið fyrir mölina.  Einnig ræddi Páll um rafmagnsmál á Austurfjöru.  Hafnarstjóra falið að ræða við Ómar um samstarf um lagningu rafmagns á Austurfjöru.

Sigfús ræddi um aðstöðu við Austurfjörubryggju og lýsti þeirri skoðun að rétt væri að Hornafjarðarhöfn ætti mannvirkið.  Taldi hann að ýmislegt væri ábótavant varðandi framkvæmdina.  Einnig ræddi hann um að erfitt væri að taka stór skip sem leggjast ættu við Austurfjörubryggju inn á veturna.  Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og öðrum starfsmönnum hafnarinnar að setja takmörk varðandi komu stórra skipa við Austurfjörubryggju.

 

3. Framkvæmdir

Rætt um samning við Gáma- og tækjaleiguna um dælingu.  Kom fram að ýtt hafi verið á Siglingastofnun og að fundað verði um málið þann 6. desember.

Fyrir fundinum lá minnisblað frá Siglingastofnun, dags. 13. október 2006, vegna sjónskoðunar sjóvarnargarða á Suðurfjöru.  Þar kemur fram að ástand garðsins er þannig að ekki er þörf á að ráðast í styrkja hann.   Í framhaldinu skapaðist umræða um nauðsynlegar framkvæmdir á vegum hafnarinnar.  Hafnarstjórn leggur til að byggð verði ný stálþilsbryggja á svæðinu milli Álaugareyjarbryggju og Ískaja og fjármunir sem áætlaðir hafa verið til byggingu sandfangara á Suðurfjöru verði nýttir í þessa framkvæmd.  Rætt um staðsetningu og lengd bryggjunnar.  Hafnarstjórn óskar eftir hugmyndum frá Siglingastofnun um slíka bryggju og kostnað við hana.  Einnig rætt um Vogarbryggju og nauðsynlegt viðhald á henni.  Hafnarstjóra falið að koma óskum Hafnarstjórnar á framfæri við samgönguyfirvöld.

Hjördís Þóra ræddi um ástand bryggjunnar í Óslandi gegnt Melatanga.  Í kjölfarið skapaðist umræða um bryggjuna á Melatanga.  Hafnarstarfsmönnum falið að meta ástand bryggjanna.

Sigfús ræddi um landbrot í Óslandi.  Hann taldi að landbrot sunnanvert við Óslandshraun væri 3-4 metrar á skömmum tíma.  Hafnarstjóra falið að ræða við Umhverfisstofnun, Landgræðsluna og Siglingastofnun um málið.

Rætt um upptökubraut fyrir smábáta og mikilvægi þess að breikka hana vegna stærri smábata.

 

4. Rafmagn á Austurfjöru

Frestað næsta fundar.

 

5. Gjaldskrármál hafna

·  Bréf Hafnasambands sveitarfélaga dags. 27. nóvember 2006.

Umræða skapaðist um uppbyggingu gjaldskrá hafna.  Í því sambandi var til dæmis rætt um hvort rétt væri að leggja gjald samkvæmt þyngd en ekki verðmæti.  Samþykkt að taka gjaldskrá hafnarinnar til umræðu á næsta fundi.

 

6.  Fjárhagsstaða hafna

·  Bréf Hafnasambands sveitarfélaga dags. 27. nóvember 2006.

Til kynningar.

 

7. Fjárhagsáætlun 2007

Hjalti fór yfir fjárhagsáætlun fyrir höfnina.   Áætlun hafnarinnar árið 2007 gerir ráð fyrir að rekstrartekjur lækki um 3 miljónir á milli ára.  Skýrist það fyrst og fremst af minnkandi aflagjöldum.  Gert er ráð fyrir að sameiginlegur kostnaður aukist um tæpar 9,5 miljónir króna.  Gert er ráð fyrir að tekjur Hafnarvogar dragist saman um 1 miljón króna vegna minkandi afla.   Rekstrargjöld hækka alls um 14,3 miljónir króna vegna ofangreindra þátta og annarra liða sem breytast einnig líttillega, t.d. laun og launatengd gjöld vegna almennra launabreytinga.  Fjármagnsliðir eru neikvæðir um 6,7 miljónir króna.  Rekstrarniðurstaða hafnarinnar er áætluð neikvæð um 613 þúsund.  Framkvæmdir eru áætlaðar 100 mkr. þ.a. er hlutur hafnarinnar upp á 40 mkr.

Óskað var eftir rekstrarstöðu hafnarinnar á næsta fundi.

 

8. Önnur mál

· Rætt um dælingu. 

 

Fundi slitið kl. 19.20

   

 

 

  

 

 


Hafnarstjórn

grein
Fundargerð hafnarstjórnar 139
Fundargerð hafnarstjórnar 138
Fundargerð hafnarstjórnar 137
Fundargerð hafnarstjórnar 136
Fundargerð hafnarstjórnar 136
Fundargerð Hafnarstjórnar 135
Fundargerð Hafnarstjórnar 134
Fundargerð hafnarstjórnar 133
Fundargerð hafnarstjórnar 132
Fundargerð hafnarstjórnar 131
Fundargerð hafnarstjórnar 130
Fundargerð hafnarstjórnar 129
Fundargerð hafnarstjórnar 128
Fundargerð hafnarstjórnar 127
Fundargerð hafnarstjórnar 126
Fundargerð hafnarstjórnar 125
Fundargerð hafnarstjórnar 124
Fundargerð hafnarstjórnar 123
Fundargerð hafnarstjórnar 122
Fundargerð  hafnarstjórnar 121
Fundargerð hafnarstjórnar 120
Fundargerð Hafnarstjórnar 119
Fundargerð hafnarstjórnar 118
Fundargerð hafnarstjórnar 116
Fundargerð hafnarstjórnar 115
Fundargerð hafnarstjórnar 114
Fundargerð hafnarstjórnar 113
Fundargerð hafnarstjórnar 112
Fundargerð hafnarstjórnar 111
Fundargerð hafnarstjórnar 110
Fundargerð hafnarstjórnar 109
Fundargerð hafnarstjórnar 108
Fundargerð hafnarstjórnar 107
Fundargerð hafnarstjórnar 106
Fundargerð hafnarstjórnar 105
Fundargerð hafnarstjórnar 104
Fundargerð hafnarstjórnar 103
Fundargerð hafnarstjórnar 102
Fundargerð hafnarstjórnar 101
Fundargerð hafnarstjórnar 99
Fundargerð hafnarstjórnar 100
Fundargerð hafnarstjórnar 98
Fundargerð hafnarstjórnar 97
Fundargerð hafnarstjórnar 96
Fundargerð hafnarstjórnar 95
Fundargerð hafnarstjórnar 94
Fundargerð hafnarstjórnar 93
Fundargerð hafnarstjórnar 92
Fundargerð hafnarstjórnar 91
Fundargerð hafnarstjórnar 90
Fundargerð hafnarstjórnar 89
Fundargerð hafnarstjórnar 88
Fundargerð hafnarstjórnar 87
Fundargerð hafnarstjórnar 86
Fundargerð hafnarstjórnar 85
Fundargerð hafnarstjórnar 84
Fundargerð hafnarstjórnar 83
Fundargerð hafnarstjórnar 82
Fundargerð hafnarstjórnar 81
Fundargerð hafnarstjórnar 80
Fundargerð hafnarstjórnar 79
Fundargerð hafnarstjórnar 78
Fundargerð hafnarstjórnar 77
Fundargerð hafnarstjórnar 76
Fundargerð hafnarstjórnar 75
Fundargerð hafnarstjórnar 74
Fundargerð hafnarstjórnar 73
Fundargerð hafnarstjórnar 72
Fundargerð hafnarstjórnar 71
Fundargerð hafnarstjórnar 70
Fundargerð hafnarstjórnar 69
Fundargerð hafnarstjórnar 68
Fundargerð hafnarstjórnar 67
Fundargerð hafnarstjórnar 66
Fundargerð hafnarstjórnar 65
Fundargerð Hafnarstjórnar 64
Fundargerð hafnarstjórnar 63
Fundargerð Hafnarstjórnar 62
Fundargerð Hafnarstjórnar 61
Fundargerð Hafnarstjórnar 60
Fundargerð Hafnarstjórnar 59
Fundargerð hafnarstjórnar 58
Fundargerð Hafnarstjórnar 57
Fundargerð Hafnarstjórnar 56
Fundargerð Hafnarstjórnar 55
Fundargerð Hafnarstjórnar 53
Fundargerð hafnarstjórnar 54
Fundargerð Hafnarstjórnar 53
Fundargerð hafnarstjórnar 52
Fundargerð Hafnarstjórnar 51
Fundargerð Hafnarstjórnar 51
Fundargerð Hafnarstjórnar 50
Fundargerð Hafnarstjórnar 49
Fundargerð Hafnarstjórnar 48
Fundargerð Hafnarstjórnar 47
Fundargerð Hafnarstjórnar 46
Fundargerð Hafnarstjórnar 45
Fundargerð Hafnarstjórnar 44
Fundargerð Hafnarstjórnar 43
Fundargerð Hafnarstjórnar 42
Fundargerð Hafnarstjórnar
Fundargerð Hafnarstjórnar
Fundargerð Hafnarstjórnar
Fundargerð Hafnarstjórnar
Fundargerð Hafnarstjórnar
fundargerð Hafnarstjórnar
fundargerð Hafnarstjórnar
Fundargerð Hafnarstjórnar
Fundargerð Hafnarstjórnar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica