Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 87
87. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 16. janúar 2007 kl. 17:00
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Halldór Tjörvi Einarsson og Páll Guðmundsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson og Sigfús Harðarson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Hjalti gerð grein fyrir að hann hafi ítrekað að fá tilboð frá Línuborun hf. um að leggja rafmagn á Austurfjörur. Sigfús gerði grein fyrir samtölum sínum við kafara um sama mál. Óskað eftir að verkfræðingar sem vinna fyrir sveitarfélagið vinni útboðsgögn og leiti eftir tilboðum. Þá gerði Hjalti grein fyrir því að hann hafi rætt við Ómar Antonsson um Austurfjörubryggju. Hafnarstjórn sammála um að stefna beri að fundi með Ómari í 6. viku.
2. Fjármál hafnarinnar
Hjalti lagði fram yfirlit yfir rekstur hafnarinnar árin 2005 og 2006. Á yfirlitinu er skipting eftir mánuðum. Samkvæmt yfirlitinu er 12 m.kr. rekstrarafgangur hjá höfninni árið 2006 en var 17 m.kr. árið 2005. Ekki er búið að ganga frá uppgjöri þannig að tölur kunna að breytast.
3. Framkvæmdir
Lögð fram hugmynd að 100 metra stálþilskanti við Álaugarey. Einnig gerð grein fyrir viðræðum við Siglingastofnun vegna málsins. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að fylgja þessum hugmyndum eftir og ýta á að undirbúningur og hönnun fari af stað sem fyrst. Hafnarstjórn felur starfsmönnum einnig að láta skoða Vogarbryggjuna og fá álit á ástandi hennar og grófa hugmynd að kostnaði við lagfæringar fyrir næsta fund. Óskað var eftir hugmynd frá starfsmönnum varðandi lýsingu í innsiglingunni.
4. Gjaldskrármál hafna
· Bréf Hafnasambands sveitarfélaga dags. 27. nóvember 2006.
Rætt um hugmyndir sem koma fram í bréfinu að breytingum á álagningu aflagjalds og álagningu vörugjalda.
Hafnarstjórn samþykkir að gjaldskrá hafnarinnar breytist skv. vísitölu neysluverðs.
5. Dýpkun
Lagt fram kort af höfninni sem sýnir dýpi í höfninni. Umræður sköpuðust um fyrirkomulag dælingar.
6. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið kl. 19.00


