Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 91
91. fundur
Mætt voru: Reynir Arnarson, formaður, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir og Páll Guðmundsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Sigfús Harðarson og Vignir Júlíusson.
1. Opnun tilboða í viðgerð á aðalvélum Birni Lóðs.
Viðstaddur auk fundarmanna var Ari Jónsson.
Óskað var eftir tilboði í eftirfarandi verk: Viðgerð á aðalvélum í Birni Lóðs.
Samkvæmt verklýsingu þurftu tilboðsgjafar að tilgreina hvenær verki verði lokið. Áhersla var lögð á hröð en góð vinnubrögð. Tilboðsgjafar gátu ákveðið hvort gert verði við vélarnar um borð í bátnum eða þær fluttar á verkstæði. Verkið felst í að skipta um alla stimpla, hringi og slífar. Strokklok verði yfirfarið, skipt um alla ventla, splitti, sæti, stýringar, snerla og gorma, ennfremur viðeigandi þéttingar / pakkningar. Smurdæla, vatnsdæla, olíuverk og spíssar yfirfarið. Skolloftskælir og smurkælir þrifið og prófað. Yfirfara þarf sveifarás bakborðsvélar og í kjölfarið verður tekin ákvörðun um viðgerð eða kaup á nýjum. Óskað er eftir tilboði í viðgerðina annars vegar miðað við að skipt verði um sveifarás og hins vegar að gert verði við sveifarás.
Engar athugasemdir komu fram fyrir opnun.
Eftirtalin tilboð bárust, (opnuð í þessari röð):
|
Nöfn bjóðenda |
Tilboðsupphæð |
|
|
|
nýr sveifarás |
viðgerð. á sveifarás |
|
Vélsmiðja Hornafjarðar (varahl. frá öðrum) |
3.526.104 |
3.365.462 |
|
Vélsmiðju Hornafjarðar (varahlutir frá umboði) |
3.927.711 |
3.526.104 |
|
Aflhlutir |
3.591.000 |
3.135.000 |
|
Vélsm. Foss |
3.458.204 |
3.043.595 |
|
Hekla |
3.622.728 |
2.994.690 |
Eftirfarandi athugasemdir voru gerðar eftir opnun: Vantar tilboð frá Heklu í sb. vél. Vantar að tilgreina verktíma hjá Heklu og Aflvélum. Vantar verð frá Aflvélum í flutning og að fjarlæga og setja vélar niður eftir uppgerð.
Vélsmiðja Hornafjarðar gerði tilboð annars vegar með varahlutum frá umboði og hins vegar með varahlutum frá öðrum. Aflhlutir, Foss og Hekla gáfu tilboð án vsk. Vélsmiðja Hornafjarðar gerði tilboð með vsk. Upphæðir í fundargerðinni eru allar tilgreindar án vsk.
Ari Jónsson vék af fundi.
Hafnarstjórn yfirfór tilboð og taldi of mikla annmarka á tilboðum Aflhluta og Heklu til að hægt yrði að ganga til samninga við fyrirtækin. Í tilboði Vélsmiðju Hornafjarðar er tilgreint að verktími sé áætlaður 18 virkir vinnudagar. Í tilboði Vélsm. Foss er tilgreint að verktíminn verði 6 vinnuvikur. Hafnarstjórn leggur áherslu á að verkið verði unnið hratt. Þar sem ekki er teljandi munur á verðtilboði Vélsm. Hornafjarðar og Vélsm. Foss en töluverður munur á verktíma felur hafnarstjórn hafnarstjóra að ganga til viðræðna við Vélsmiðju Hornafjarðar. Hafnarstjórn leggur áherslu á að gerður verður verksamningur með þeim tímamörkum sem fram koma í tilboði og dagsektir verði tilgreindar í samningi.
Kynnt var verðkönnun á kaupum á nýjum vélum til samanburðar við viðgerð á núverandi vélum. Kom fram að kaup á nýjum vélum eru töluvert dýrari kostur en viðgerð á gömlum.
2. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið kl. 17.40


