Hafnarstjórn

Fundargerð hafnarstjórnar 92

92. fundur

Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal Ráðhúss miðvikudaginn 9. maí 2007 kl. 16:00.

Mætt voru:     Reynir Arnarson, formaður, Ásgeir Gunnarsson, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir og Páll Guðmundsson.   Einnig: Hjalti Þór Vignisson og Sigfús Harðarson.

 1.      Fundargerð síðasta fundar

Engar athugasemdir.

 2.      Málefni Austurfjörubryggju

Rætt um fund sem fulltrúar í hafnarstjórn áttu með Ómari Antonssyni, þar sem rætt var um öryggismál, lóð, námur, dælingu o.fl.

 3.      Athugasemdir við ákvörðun Hafnarstjórnar um viðgerð á aðalvélum Björns Lóðs.

Lagðir fram þrír tölvupóstar dags. 30. apríl 2007, dags. 2. maí 2007 og dags. 2. maí 2007.  Hafnarstjórn stendur við fyrri ákvörðun sína.  Ástæðan fyrir því að tilboð Vélsm. Hornafjarðar var tekið miðast út frá styttri verktíma.  Einnig er ekki teljandi munur á tilboðum Vélsm. Foss og Vélsm. Hornafjarðar mv. að keyptur yrði nýr sveifarás.  Hafnarstjórn tók ákvörðun á fundi sínum þann 27. apríl að kaupa nýjan sveifarás í stað þess að gera við þann gamla.

 4.      Ársreikningar 2006

(Ásta H. Guðmundsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið).  Ásta kynnti ársreikninga fyrir árið 2006.  Rekstrartekjur voru 83,4 m.kr. en rekstrargjöld voru 78,5 m.kr.  Rekstrarniðurstaða er því jákvæð um 4,9 m.kr. en fjármagnsliðir voru neikvæðir um 6,3 m.kr og er því tap af rekstri hafnarsjóðs upp á 1,35 m.kr.  Hreint veltufé frá rekstri eru 9 m.kr., Skammtímakröfur minnkuðu um 16,8 m.kr.  og skammtímaskuldir jukust um 1,3 m.kr.  Handbært fé frá rekstri var 27,2 m.kr.

Hafnarstjórn samþykkir ársreikning fyrir sitt leyti.

 5.      Framtíð í rekstri hafnarinnar

Hjalti gerði grein fyrir vinnu sem fram hefur farið að undanförnu.  Stefnt er að því að leggja fram drög að greinargerð í byrjun júní.

 6.      Minnisblað vegna tilraunar Hornafjarðarhafnar og Siglingastofnunar

Lagt fram minnisblað, dags. 25. apríl 2007 frá Vigni Júlíussyni.  Hafnarstjórn fagnar samvinnu hafnarinnar og Siglingastofnunar og er samála um að halda eigi áfram að þróa þá samvinnu út frá fenginni reynslu.  Hafnarstjórn er sammála um að stefna að því að fá að störf á vegum Siglingastofnunar til Hornafjarðar, hvort sem um ræðir hlutastörf eða heil störf.

 7.      Hafnarframkvæmdir 2007

Lagt fram bréf frá Siglingastofnun dags. 10. apríl 2007, varðandi hafnarframkvæmdir 2007.  Kom fram að áætlaður heimahluti fyrirhugaðra framkvæmda í hafnargerð á Höfn er 42,1 m.kr.

Undir þessum lið sköpuðust miklar umræður um dælingu við Bátstanga.  Hafnarstjórn leggur áherslu á að dýpkun verði lokið sem allra fyrst.

Einnig var spurt um stöðu varðandi Álaugareyjarbryggju.  Hafnarstjóra falið að afla upplýsinga um málið.

Hafnarstjórn samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti.

 8.      Breytingar á hafnalögum

Til kynningar.

 9.      Athugasemdir við útboð á viðhalds og stofndýpkun í Hornafjarðarhöfn

Lagt fram bréf frá Landslögum, lögfræðistofa, dags. 4. maí 2007, þar sem gerðar eru athugasemdir við útboð á verkinu: Viðhalds- og stofndýpkun Hornafjarðarhafnar.  Einnig lagt fram bréf frá Vélsm. Foss og Rósabergi ehf. um dýpkun Hornafjarðarhafnar.

Hjalti gerði grein fyrir samtölum sínum við starfsmann Siglingastofnunar um samskipti stofnunarinnar við Gáma- og tækjaleiguna. 

Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að ræða við forsvarsmenn Foss og Rósabergs en leggur áherslu á að niðurstaða fáist í samskipti við Gáma- og tækjaleiguna sem allra fyrst.  Þá telur Hafnarstjórn sjálfsagt að verða við óskum sem koma fram í bréfi frá Landslögum sem lúta að aðgengi að upplýsingum.

 10.  Önnur mál

Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við kafara um að leggja rafmagnsstreng yfir á Austurfjörutanga.  Sigfúsi falið að fylgja málinu eftir.

Rætt um heimsókn til annarra hafna á Austfjörðum. Fram kom áhugi á að fara í slíka ferð, annað hvort núna í vor eða næsta haust.

Reynir bar upp hugmynd um þátttöku hafnarinnar í næstu sjávarútvegssýningu.  Hugmynd kom upp um að ræða við aðrar hafnir á Austfjörðum um samstarf.  Starfsmönnum falið að meta kostnað og gera tillögur í framhaldi af því.

 

Fundi slitið kl.  18.30

 

 




Hafnarstjórn

grein
Fundargerð hafnarstjórnar 139
Fundargerð hafnarstjórnar 138
Fundargerð hafnarstjórnar 137
Fundargerð hafnarstjórnar 136
Fundargerð hafnarstjórnar 136
Fundargerð Hafnarstjórnar 135
Fundargerð Hafnarstjórnar 134
Fundargerð hafnarstjórnar 133
Fundargerð hafnarstjórnar 132
Fundargerð hafnarstjórnar 131
Fundargerð hafnarstjórnar 130
Fundargerð hafnarstjórnar 129
Fundargerð hafnarstjórnar 128
Fundargerð hafnarstjórnar 127
Fundargerð hafnarstjórnar 126
Fundargerð hafnarstjórnar 125
Fundargerð hafnarstjórnar 124
Fundargerð hafnarstjórnar 123
Fundargerð hafnarstjórnar 122
Fundargerð  hafnarstjórnar 121
Fundargerð hafnarstjórnar 120
Fundargerð Hafnarstjórnar 119
Fundargerð hafnarstjórnar 118
Fundargerð hafnarstjórnar 116
Fundargerð hafnarstjórnar 115
Fundargerð hafnarstjórnar 114
Fundargerð hafnarstjórnar 113
Fundargerð hafnarstjórnar 112
Fundargerð hafnarstjórnar 111
Fundargerð hafnarstjórnar 110
Fundargerð hafnarstjórnar 109
Fundargerð hafnarstjórnar 108
Fundargerð hafnarstjórnar 107
Fundargerð hafnarstjórnar 106
Fundargerð hafnarstjórnar 105
Fundargerð hafnarstjórnar 104
Fundargerð hafnarstjórnar 103
Fundargerð hafnarstjórnar 102
Fundargerð hafnarstjórnar 101
Fundargerð hafnarstjórnar 99
Fundargerð hafnarstjórnar 100
Fundargerð hafnarstjórnar 98
Fundargerð hafnarstjórnar 97
Fundargerð hafnarstjórnar 96
Fundargerð hafnarstjórnar 95
Fundargerð hafnarstjórnar 94
Fundargerð hafnarstjórnar 93
Fundargerð hafnarstjórnar 92
Fundargerð hafnarstjórnar 91
Fundargerð hafnarstjórnar 90
Fundargerð hafnarstjórnar 89
Fundargerð hafnarstjórnar 88
Fundargerð hafnarstjórnar 87
Fundargerð hafnarstjórnar 86
Fundargerð hafnarstjórnar 85
Fundargerð hafnarstjórnar 84
Fundargerð hafnarstjórnar 83
Fundargerð hafnarstjórnar 82
Fundargerð hafnarstjórnar 81
Fundargerð hafnarstjórnar 80
Fundargerð hafnarstjórnar 79
Fundargerð hafnarstjórnar 78
Fundargerð hafnarstjórnar 77
Fundargerð hafnarstjórnar 76
Fundargerð hafnarstjórnar 75
Fundargerð hafnarstjórnar 74
Fundargerð hafnarstjórnar 73
Fundargerð hafnarstjórnar 72
Fundargerð hafnarstjórnar 71
Fundargerð hafnarstjórnar 70
Fundargerð hafnarstjórnar 69
Fundargerð hafnarstjórnar 68
Fundargerð hafnarstjórnar 67
Fundargerð hafnarstjórnar 66
Fundargerð hafnarstjórnar 65
Fundargerð Hafnarstjórnar 64
Fundargerð hafnarstjórnar 63
Fundargerð Hafnarstjórnar 62
Fundargerð Hafnarstjórnar 61
Fundargerð Hafnarstjórnar 60
Fundargerð Hafnarstjórnar 59
Fundargerð hafnarstjórnar 58
Fundargerð Hafnarstjórnar 57
Fundargerð Hafnarstjórnar 56
Fundargerð Hafnarstjórnar 55
Fundargerð Hafnarstjórnar 53
Fundargerð hafnarstjórnar 54
Fundargerð Hafnarstjórnar 53
Fundargerð hafnarstjórnar 52
Fundargerð Hafnarstjórnar 51
Fundargerð Hafnarstjórnar 51
Fundargerð Hafnarstjórnar 50
Fundargerð Hafnarstjórnar 49
Fundargerð Hafnarstjórnar 48
Fundargerð Hafnarstjórnar 47
Fundargerð Hafnarstjórnar 46
Fundargerð Hafnarstjórnar 45
Fundargerð Hafnarstjórnar 44
Fundargerð Hafnarstjórnar 43
Fundargerð Hafnarstjórnar 42
Fundargerð Hafnarstjórnar
Fundargerð Hafnarstjórnar
Fundargerð Hafnarstjórnar
Fundargerð Hafnarstjórnar
Fundargerð Hafnarstjórnar
fundargerð Hafnarstjórnar
fundargerð Hafnarstjórnar
Fundargerð Hafnarstjórnar
Fundargerð Hafnarstjórnar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica