Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 93
93. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal Ráðhúss föstudaginn 8. júní . maí 2007 kl. 12:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson, formaður, Þorsteinn Guðmundsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Halldór Tjörvi Einarsson og Páll Guðmundsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson og Sigfús Harðarson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Lokauppgjör verka dýpkun á grynnslum og endurbætur á Krosseyjarbakka
Hafnarstjórn gerir ekki athugsemdir við uppgjörið.
3. Samþykki á tilfærslu á fjármunum til framkvæmda við Álaugareyjarbryggju
Til kynningar.
4. Dýpkun
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við starfsmenn Siglingarstofnunar og eins verktaka sem buðu í verkið. Páll benti á að Siglingastofnun hefði nýverið boðið út tvö verk í dælingu. Hafnarstjórn var samála um að bíða með frekari ákvarðanir í dælingarmálum þar til að útboð í þessi verk yrðu opnuð. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að mæla dýpt í höfninni.
Sigfús sagði frá því að hann hafi merkt inn á kort ?fasta bletti? í höfninni. Þá sagði hann frá samtali sínu við starfsmenn Björgunar sem yrðu á ferðinni í ágúst mánuði. Hafnarstjórn telur mikilvægt að fá Björgun til þess að taka þessi bletti og felur Sigfúsi að fylgja málinu eftir.
5. Stálþil
Hafnarstjórn samþykkir að gengið verði að tilboði, skv. bréfi Siglingastofnunar.
6. Rekstrarstaða
Ásta fór yfir rekstur hafnarinnar og m.a. að rekstrarstaða hafnarinnar fyrstu fjóra mánuðina væri um 11 m.kr. í hagnað, veltufé frá rekstri erum 14,7 m.kr. og fjárfestingar eru um 2,3 m.kr. Gjöld eru í samræmi við fjárhagsáætlun en tekjur eru hærri um 42,4% af áætlun.
7. Önnur mál
Óskar Ingi Sigmundsson starfsmaður Siglingastofnunar og Vignir Júlíusson, komu á fundinn og kynntu verkefni hafnarverndar. Von er á úttektarskýrslu frá Óskari Inga.
Fundi slitið kl.


