Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 100
100. fundur
Fundur hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, föstudaginn 22. febrúar 2008 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Páll Guðmundsson, Guðrún Ingimundardóttir, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Vignir Júlíusson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200802036 - Bygginarleyfisumsókn v. löndunarhúss við fiskimjölsverksmiðju í Óslandi
Lagðar fram teiningar frá Verkfræðistofu Siglufjarðar frá janúar 2008. Einnig lagt fram erindi frá Skinney - Þinganes, dags. 12. febrúar 2008, um byggingu löndunarhúss.
Kom fram að byggingar- og skipulagsnefnd hafi heimilað framkvæmdir fyrir sitt leyti, með fyrirvara um að endanlegar teikningar verði lagðar fram.
Haukur Ingi gerði grein fyrir framvindu mála.
Hafnarstjórn fellst á fyrirhugaða framkvæmd fyrir sitt leyti.
2. 200705114 - Önnur mál
Vignir gerði grein fyrir landbroti á Suðurfjörum. Taldi hann að nauðsynlegt að verja fjörurnar fyrir næsta vetur, að óbreyttu stefnir í alvarlegt ástand við innsiglinguna. Einnig eru skemmdir í varnargarðinum sem þarf að bæta. Hafnarstjórn leggur mikla áherslu á að Siglingstofnun bregðist við og sendi sérfræðinga til Hornafjarðar til að meta ástandið og gera áætlanir um úrbætur.
Rætt um Hedda frænda. Páll Guðmundsson tók að sér að hafa samband við aðila sem hefur sýnt áhuga á að fá Hedda frænda til eignar. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að undirbúa útboð fyrir förgun á Hedda frænda.
Rætt um vigtarmál. Hafnarstjórn leggur til að bæjarráð taki þessi mál upp við sjávarútvegsráðherra þegar ráðið hittir hann í næstu viku.
Lagt til að Grynnslin verði dýptarmæld við fyrsta tækifæri.
Hafnarstjórn leggur áherslu á að upptökubraut fyrir smábáta verði löguð.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:50


