Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 101
101. fundur
Fundur í hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,þriðjudaginn 18. mars 2008 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgeir Gunnarsson, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Páll Guðmundsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Vignir Júlíusson, Sigfús Harðarson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri tækni- og umhverfissviðs
1. 200803018 - Rekstur áhaldahúss, Hornafjarðarveita og Hornafjarðarhafnar
Hjalti greindi frá tillögum starfmanna um samrekstur áhaldahúss, Hornafjarðarveita og Hornafjarðarhafnar. Hjördís spurðist fyrir um hvaða áhrif samreksturinn hefði á starfmenn Hornafjarðarhafnar. Greint var frá því að engar stórkostlegar breytingar væru fyrirhugaðar á verksviði hafnarstarfsmanna. Sigfús vakti máls á því að vigtun hafi aukist verulaga undanfarnar vikur. Í kjölfarið sköpuðust umræður um fyrirkomulag vigtanna. Hafnarstjórn leggur til að taka gjald fyrir endurvigtun sem starfmenn hafnarinnar sinna. Starfmanni falið að ræða við þá aðila er málið varðar í samræmi við umræður á fundinum. Starfmönnum falið að kanna hvernig umhirðu á vegi meðfram Miklagarði er háttað.
2. 200803042 - Innsigling um Hornafjarðarós
Vignir greindi frá dýptarmælingum 15. mars 2008 á grynnslum í Hornafirði, ekki er um stórkostlegar breytingar að ræða frá fyrri mælingum sem fóru fram 10. júní 2007. Reynir vakti máls á tillögu Gísla Viggóssonar um breytingu á innsiglingunni. stjórnin leggur til að tillagan verði skoðuð nánar.
Umræður sköpuðust um dælingu í höfninni almennt og núverandi dælingu. Núverandi dæling gengur vel búið er að dæla um 11 þúsund rúmmetrum. Þó á eftir að dýpka innar í höfninni. Starfmanni falið að kanna hvort möguleiki er að fá pramma í höfnina til að sinna þeim dýpkunum.
3. 200803009 - Landbrot í Óslandi
Hjalti greindi frá þeirri vinnu sem farið hefur fram.
4. 200803043 - Förgun skipa
Starfsmönnum falið að leita tilboða í förgun á Hedda Frænda.
5. 200705114 - Önnur mál
Útibú Siglingamálastofnunar
Lagt fram bréf Siglingarmálastofnunar dagsett 22.02.2008 þar sem farið er fram á fjárveitingar til að koma upp og reka starfstöð Siglingarstofnunar á Hornafirði.
Álaugareyjarbryggja
Ásgeir spurði um stöðu mála við Álaugareyjarbryggju. Fyrirséð er að framkvæmdir hefjist innan tíðar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:45


