Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 106
106. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórnar Hornafjarðar í ráðhúsi,föstudaginn 10. október 2008 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Þorsteinn Guðmundsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Sigurður Ólafsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Sigfús Harðarson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200804075 - Starfsmannamál
Hjalti gerði grein fyrir umsækjendum í starf við Hornafjarðarhöfn, áhaldahús og Hornafjarðarveitur. Kom fram að aðstæður hafa breyst í þjóðfélaginu frá því að umsóknum var skilað. Hafnarstjórn samþykkir því að hafna öllum umsóknum og ráða tímabundið í starf við Hornafjarðarhöfn, áhaldahús og Hornafjarðarveitur. Kom fram að vaktaplan á höfninni hér eftir gerði ráð fyrir tveimur hafnsögumönnum og tveimur starfsmönnum til viðbótar sem sinna öðrum störfum.
Hafnarstjóra falið að ljúka málinu.
2. 200705114 - Önnur mál
Ásgeir spurði um framgang við Álaugareyjarbryggju og lagði áherslu á að verkið verði klárað sem fyrst. Haukur Ingi og Sigfús upplýstu um að bryggjan verði væntanlega nothæf um mánaðarmót október/nóvember.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:00


