Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 108
108. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi, þriðjudaginn 2. desember 2008 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu: Reynir Arnarson, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson, Valdemar Einarsson og Sigfús Harðarson.
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200808035 - Björgunarlaun
Sigríður Kristinsdóttir lögfræðingur mætti á fundinn undir þessum lið. Gerði hún grein fyrir lögum um björgun og fór yfir dómaframkvæmdir varðandi björgun. Ræddi hún um kröfu um björgunarlaun.
Sigfús Harðarson gerði grein fyrir að óskað hafi verið eftir að Lóðsinn togaði í Axel og taldi að um yfirvofandi hættu hafi verið að ræða.
Hafnarstjórn sammála um að gera ítrustu kröfur um björgunarlaun.
2. 200807054 - Fjárhagsáætlun 2009 - 2011
Ásta Guðmundsdóttir fór yfir drög að fjárhagsáætlun og framkvæmdir á næstu árum. Samþykkt að vísa til annarrar umræðu.
3. 200812007 - Lóðir við höfnina
Haukur Ingi kynnti lóðamörk við höfnina. Rætt um frágang við nýja Álaugareyjabryggju. Hauki Inga falið að óska eftir teikningu frá Siglingastofnun og hugmyndum um frágang.
4. 200804073 - Dýpkun í Hornafjarðarhöfn
Haukur Ingi fór yfir hugmyndir um gröft við Bátstanga. Hafnarstjórn sammála um að gera tilraun í að grafa við Bátstanga.
5. 200705114 - Önnur mál
Engin.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:05


