Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 110
110. fundur
Fundur í hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 14. janúar 2009 og hófst hann kl. 12:00Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Valdemar Einarsson, Birgir Árnason, Sigfús Harðarson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200810010 - Fjárhagsáætlun 2009
Lögð fram fjárhagsáætlun 2009. Gert er ráð fyrir tekjum að upphæð 75,4 m.kr., rekstrargjöldum, afskriftum og fjármagnsgjöldum að upphæð 70,6 m.kr. Rekstrarafgangur er 4,8 m.kr.
Hafnarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun fyrir árið 2009.
2. 200808034 - Framkvæmdir
Gert er ráð fyrir að steypa þekju á Álaugareyjarbryggju árið 2009 og verður hluti hafnarinnar 22,6 m.kr., hlutur hafnarinnar í viðhaldsdýpkun er áætlaður 4,6 m.kr. og viðhald á bryggjunni við Hafnarvog alls 2,3 m.kr.
Rætt um framkvæmdir á árinu 2010 og 2011. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að bjóða út frágang við Ískaja og endurbætur á bryggjunni við Hafnarvog. Hafnarstjórn samþykkir að hafinn verði undirbúningur og hugmyndarvinna um endurbætur eða nýbyggingu á Hafnarvog og endurnýjunni á vigtinni. Hafnarstjórn leggur mikla áherslu á að rannsóknir á Grynnslunum hefjist árið 2009 og felur hafnarstjóra og formanni að fylgja því eftir.
3. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Lagt fram tölvubréf frá framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar þar sem gerð er grein fyrir vinnu starfshóps á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar að endurskoðun aðalskipulags fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð. Í bréfinu er óskað eftir ábendingum og athugasemdum um texta í aðalskipulagi sem varðar Hornafjarðarhöfn. Óskað er eftir því að tillögur og ábendingar berist til starfshópsins eigi síðar en 20. mars 2009. Ákveðið að hittast á vinnufundi með aðal- og varamönnum um aðalskipulg í febrúar.
4. 200705114 - Önnur mál
Rætt um staðsetningu grenndargámastöðvar á hafnarsvæðinu. Lagt til að setja stöðina upp undir Afkasthól á milli Hvamms og Dyngju.
Formaður upplýsti að Ásgeir Gunnarsson hætti í hafnarstjórn eftir þennan fund. Fundarmenn þökkuðu Ásgeir fyrir samstarfið.


