Gamla - Húsnæðisnefnd
Fundargerð húsnæðisnefndar 78
78. fundur
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar í ráðhúsi,fimmtudaginn 25. október 2007 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu:
Guðrún Ingimundardóttir, Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir, Einar Karlsson, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir,
Fundargerð ritaði: Ásta H. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
1. 200708019 - Sandbakkavegur 2 0101
Íbúðin sem er þriggja herbergja og 100,7 fm. var úthlutað.
2. 200710029 - Fjárhagsáætlun 2008
Ásta kynnti drög að fjárhagsáætlun 2008 þar kemur fram að rekstrarniðurstaða er um 11,6 m.kr. halli sem helgast m.a. að því að nú er gert ráð fyrir afskriftum íbúða skv. tilmælum frá endurskoðanda og reiknaðar eru verðbætur á langtímalán. Handbært fé frá rekstri er 6,1 m.kr. og afborganir langtímalána 8,7 m.kr. peningalegur halli er því um 2,6 m.kr.
Húsnæðisnefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar til bæjarstjórnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.


