Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 77
77. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd miðvikudaginn 24. apríl 2006 kl. 16:00 í fundarsal Nýheima. Mætt voru: Hermann Hansson, Ágústína Halldórsdóttir, Guðlaug Hestnes og Bryndís Hólmarsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir komu fram.
2. Málþing um skapandi atvinnugreinar ? Mikligarður
Rætt um forsendur útreikninga um rekstur og uppbyggingu Miklagarðs. Mikil umræða skapaðist um fermetragjald á leigu og efast um að það samræmist markaðnum á Höfn í dag.
3. Staða fjármála þann 19. apríl 2006
Staðan er í samræmi við áætlun.
4. Uppgjör ársins 2005
Uppgjör ársins sýnir mjög lítið frávik frá áætlun. Óskað eftir upplýsingum um þróun fjármála á yfirstandandi kjörtímabili, sundurliðað eftir sértekjum, húsnæðiskostnaði, launakostnaði og öðrum rekstrarkostnaði. Þá er óskað eftir upplýsingum um hlutfall útgjalda til menningarmála samanborið við aðra málaflokka á sama tímabili.
5. Opnunartímar á Menningarmiðstöð í sumar
Lögð fram tillaga um opnunartíma á sýningum og söfnum. Starfsmönnum falið að vinna úr tillögunum í samræmi við umræður á fundinum og leggja fram á næsta fundi.
6. Önnur mál
Samþykkt að hafa síðasta fund nefndarinnar á kjörtímabilinu þann 17. maí n.k..
Fundi slitið kl. 17.55


