Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð Skólanefndar 63
63. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, þriðjudaginn 14. september 2004 kl. 17:00
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Brynja Baldursdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Brynja Kristjánsdóttir, Pálína Þorsteinsdóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 62. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skýrsla framkvstj. ? Könnun á afstöðu foreldra í Öræfum til leik- og grunnskólagöngu
Dagana 26. og 27. ágúst 2004 heimsótti framkvstj. sviðsins ellefu fjölskyldur í Öræfum til að kanna hug þeirra til leik- og grunnskólagöngu barna sinna. Þetta eru allar fjölskyldur í sveitinni sem eiga börn á umræddum aldri. Spurt var meðal annars um leikskóladeildina í Hofgarði, skólagönguna frá 1. ? 7. bekk í Grunnsk. í Hofgarði, hugmyndir um fjölgun bekkja í Grunnsk. í Hofg., þ.e. að þar fari fram kennsla í 8. bekk eða jafnvel kennsla í 8. ? 10. bekk. Einnig var spurt um skólaakstur, heimavist o.fl. Svör við þeim spurningum sem lagðar voru fyrir foreldra er að finna í umræddri skýrslu. Stefán fór yfir skýrsluna og skýrði ýmislegt sem fram kemur í henni.
Elín taldi ekkert koma á óvart í skýrslunni. Fjallaði hún meðal annars um þá hugmynd að hafa 8. ? 10. bekk í Hofgarði, sem hún lagðist frekar gegn. Þá lagðist hún gegn daglegum akstri á Klaustur með skólabörn úr Öræfum. Brynja K. og Pálína og fóru yfir stöðuna eins og hún blasir við þeim sem starfsmenn skólans í Hofgarði. Guðmundur saknaði beinna spurninga um Heppuskóla sem gætu verið gagnlegar fyrir starfsmenn skólans. Hann taldi heimavistina í þokkalegu lagi og gerði að umtalsefni upplýsingagjöf til foreldra heimavistarbarna. Sagði hann nemendur úr Hofgarði vera vel undir áframhaldandi skólagöngu búna. Pálína og Brynja töldu það leysanlegt verkefni að vera með 8. ? 10. bekk í Hofgarði. Ýmislegt þyrfti þó að gera til þess að það væri framkvæmanlegt. Ekki voru þær tilbúnar að svara því afdráttarlaust hvort betra væri fyrir nemendur að vera áfram út grunnskólann í Hofgarði eða að búa við núverandi skipulag. Lögðu áherslu á að slíkt geti verið einstaklingsbundið. (Brynja og Pálína viku af fundi)
3. Mötuneytismál nemenda Hafnar- og Heppuskóla
Farið yfir minnisblað framkvstj., dags. 8. september 2004, og greint frá því að bæjarráð hafi falið framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að vinna áfram að málinu í samræmi við tillögur minnisblaðsins.Samkv. tillögum munu nemendur Hafnarskóla fá mat á diskum í sínum skólastofum þetta skólaár en nemendur Heppuskóla snæða í Kaffihorninu. Í umræðum um málið sagði Guðmundur það besta kostinn fyrir nemendur að fara í Kaffihornið og borða þar. Lagði áherslu á að þar verði ekki aðrir gestir meðan á þeirra máltíð stendur. Nokkrar umræður voru um þessa útfærslu og ábendingar, t.d. um reykingalykt á staðnum og áfengisauglýsingar.
Bryndís lagði áherslu á jákvæða kynningu, hún skipti höfuðmáli. Var undir það tekið. Valdís sagðist ekki vera fyllilega sátt við þessa útfærslu. Skólanefndarmenn voru sammála að hafa þessa útfærslu í vetur. Lögð var áhersla á góð þrif í Kaffihorninu, tóbaks- og áfengisauglýsingar og áfengisflöskur sjáist ekki, reykingalykt finnist ekki og að ekki sé opið fyrir öðrum gestum meðan á máltíð nemenda stendur. (Guðmundur vék af fundi)
4. Reglur fyrir leikskólana á Hornafirði
Farið yfir tillögur starfsmanna að nýjum reglum, dags. sept. 2004. Einnig var farið yfir gildandi reglur. Snæfríður fór yfir tillögur starfsmanna og þær ræddar af nefndarmönnum.
Skólanefnd samþykkti reglurnar fyrir sitt leyti.
(Snæfríður sat fundinn undir þessum lið)
5. Einstaklingsmál
Við umfjöllun einstaklingsmála, færð í trúnaðarbók, voru einungis viðstaddir skólanefndarmenn og starfsmaður nefndarinnar. (Var málið tekið fyrir sem seinasti liður á dagskrá.)
6. Önnur mál
? Skólamálaþing
Stefán greindi frá fram komnum hugmyndum um að þingið verði haldið í janúar 2005. Einnig var greint frá hugmyndum um að leikskólarnir eigi einn fulltrúa í undirbúningsnefnd og grunnskólarnir einn. Skólanefnd er sammála þeim hugmyndum og leggur til að stefnt verði að þingi í janúar - febrúar nk.
? Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Skólanefnd sér engin fagleg rök sem mæla með því að umsókn þessi verði samþykkt af bæjarráði.
? Afhent yfirlit yfir fjölda nemenda í leik-, grunn- og tónskóla. (Brynja Baldursd. vék af fundi)
Fundi slitið kl. 19:


