Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 67
67. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 26. janúar 2005 kl. 16:10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Eygló Illugadóttir, Íris Gísladóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Pálína Þorsteinsdóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 66. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Mótmæli foreldrafélagsins Krakkahóla vegna breytinga á vistunartíma í leikskólum
Í bréfi, dags. 7. desember mótmælir foreldrafélagið, fyrir hönd foreldra, fyrirhuguðum breytingum á vistunartímum leikskólanna sem taka eiga gildi 1. janúar 2005. Í bréfinu eru tilgreind rök foreldra gegn nokkrum breytingum er varða vistunartíma í reglum leikskólanna sem samþykktar voru í skólanefnd þann 14. september 2004.
Matthildur fór yfir rök foreldra gegn þeim breytingum sem gerðar hafa verið, sbr. nýjar reglur. Benti hún meðal annars á dæmi um vistunartíma hjá leikskólum í Reykjavík þar sem valfrelsi væri meira en hér.
Margrét Ingólfsdóttir lagði eftirfarandi fram: ?Bókun leikskólastjóra Lönguhóla og Krakkakots vegna bréfs foreldrafélagsins Krakkahóla. Leikskólinn er eins og nafnið ber með sér fyrst og fremst skóli en ekki vistunarstaður eins og því miður er algengt sjónarmið. Stöðugleiki og festa þurfa að ríkja í öllu starfi skólanna. Því er frekar ástæða til að fækka vistunartímum fremur en að auka þar valfrelsi. Með þetta sjónarmið að leiðarljósi leggjast leikskólastjórar Lönguhóla og Krakkakots gegn því að rýmka reglur um vistunartíma frá því sem nú er í reglum þeim sem samþykktar voru í skólanefnd 14. september 2004.?
Margrét benti á gagnstæð dæmi hjá leikskólum í Reykjavík, þar sem valfrelsi um vistunartíma væri ekki jafnmikið og af er látið. Þá fjallaði hún um innra starf leikskólanna, mikilvægi þess og þeim truflunum sem fjölbreyttur vistunartími hefur í för með sér. Valdís taldi mistök að ?taka korterin af?. Sigríður velti fyrir sér hvort koma mætti til móts við foreldra í algengustu vistunartímunum með umrætt korter fram yfir umsamdan vistunartíma. Margrét sagði breytinguna hafa farið vel fram og engin mótmæli borist til leikskólastjóra. Valdís benti á aukinn kostnað fyrir foreldra samfara þrengingu á vistunartíma.
Skólanefnd samþykkir að fresta afgreiðslu á erindi foreldra og vísa málinu til frekari vinnslu.
3. Reglur um tryggingar skólabarna
Til umfjöllunar voru annars vegar ?Reglur vegna slysa barna í grunnskólum, tónskóla og félagsmiðstöð ungmenna?, drög des.04 og hins vegar ?Reglur vegna óhappa og slysa barna í leikskólum?, ódagsett.
Guðmundur sagði það sína skoðun að sömu reglur ættu að gilda fyrir bæði skólastigin. Einnig gerði hann athugasemd við orðalag fyrstu greinar sem snýr að samþykki foreldra við því að farið verði með barnið á heilsugæslustöð.
Skólanefnd samþykkir að sömu reglur gildi fyrir bæði skólastigin að því undanskildu að síðasta grein reglna fyrir leikskóla er sérgrein fyrir það skólastig. Samþykkt að lagfæra fram lögð drög og leggja fyrir á næsta fundi skólanefndar. (Margrét og Matthildur viku af fundi og Pálína kom á fundinn)
4. Skipulagsbreytingar í Grunnskólanum í Hofgarði
Farið yfir útsend gögn, sem voru svör Pálínu Þorsteinsdóttur skólastjóra Grunnskólans í Hofgarði annars vegar og svör Guðmundar Inga Sigbjörnssonr skólastjóra Heppuskóla hins vegar, við spurningum framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs. Um er að ræða spurningar og svör við þeim hugmyndum að hefja kennslu í 8. ? 10. bekk í Grunnskólanum í Hofgarði. Einnig lagðir fram listar yfir áætlaða nemendaþróun í Öræfum og Suðursveit, yfirlit yfir námsgreinar úr aðalnámskrá grunnskóla og yfirlit sem sýnir kennslugreinar í Heppuskóla 2004 ? 2005. Fram komu ýmsar ábendingar um kosti þess og galla að að hefja kennslu í 8. ? 10. bekk í Hofgarði. Sigríður benti á anda grunnskólalaganna þar sem stefnt skal að heimanakstri grunnskólabarna þar sem því verði við komið. (Elín vék af fundi)
Skólanefnd samþykkir að leggja fram lagðan spurningalista fyrir foreldra grunnskólabarna í Öræfum. Þá samþykkir skólanefnd að kannaður verði hugur foreldra til daglegs skólaaksturs úr Suðursveit í Heppuskóla með nemendur í 8. ? 10. bekk. Einnig var samþykkt að kanna afstöðu foreldra í Suðursveit til þess hugsanlega möguleika að börn búsett þar geti stundað nám einu ári lengur í Hrollaugsstaðaskóla, þ.e. í 1. ? 8. bekk.
5. Önnur mál
? Skipan fulltrúa í starfshóp um mötuneytismál
Skólanefnd skipar Sigríði Kristinsdóttur sem fulltrúa í starfshóp um úttekt og tillögur varðandi mötuneytismál hjá sveitarfélaginu, sbr. erindisbréf, dags. 13. janúar 2005.
? Fæðiskostnaður kennara í Hafnarskóla, bréf kennara skólans
Tekið fyrir bréf kennara Hafnarskóla þar sem farið er fram á ?að bæjaryfirvöld greiði fæðiskostnað þeirra eins og gert er fyrir starfsfólk á leikskólum bæjarins og í Nesjaskóla?, eins og segir orðrétt í bréfinu. Eygló fór yfir framkvæmd vinnu kennara í matartímum. Stefán greindi frá fyrirkomulagi þessara mála við leikskólana, Nesjaskóla, Hrollaugsstaðaskóla og Grunnskólann í Horfgarði.
Skólanefnd samþykkir eftirfarandi bókun: Skólanefnd leggur áherslu á að samræmis sé gætt á milli grunnskóla sveitarfélagsins hvað varðar greiðslur til kennara fyrir vinnu með nemendum á matmálstímum annars vegar og fæðiskostnað kennara hins vegar. Skólanefnd telur eðlilegt að í þessum efnum verði farið eftir ákvæðum í kjarasamningi milli Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Skólanefnd sér ekki ástæðu til að breyta í leikskólum frá því fyrirkomulagi sem nú er. Vinna starfsmanna í hádeginu er hluti af skilgreindum dagvinnutíma þeirra. Einnig verður að líta til sérstöðu leikskólanna þar sem eru börn á aldrinum 1 ? 5 ára.
? Samræmd próf í 4. 7. og 10. bekk 2005 og 2006
Samræmd próf í 4. og 7. bekk verða 3. og 4. febrúar 2005 og í 10. bekk verða þau 9. ? 18. maí 2005.
Skil á einkunnum vegna samræmdra prófa í 10. bekk eru áætluð 6. ? 8. júní 2005.
Samræmd próf á næsta skólaári verða með eftirfarandi hætti: Í 4. og 7. bekk verða próf 20. og 21. október 2005 og í 10. bekk verða þau 3. ? 10. maí 2006.
? Skólamálaþing 19. febrúar 2005
Farið yfir 3. drög að dagskrá skólamálaþings. Fram kom í umræðum að hvetja þurfi sem flesta til að mæta og taka virkan þátt í umræðum
? Greint frá verkefninu Tónlist fyrir alla sem verður hér á sinni árlegu yfirferð þann 9. mars næstkomandi. Munu þeir Kristján Kristjánsson og Guðmundur Pétursson sjá um flutning og kynningu að þessu sinni.
? Kynnt bréf skólastjóra Heppuskóla til bæjarstjóra, dags. 22. janúar 2005, þar sem farið er fram á aukafjárveitingu til að bæta nemendum í 10. bekk upp tapaða kennslu. Samtals er um að ræða 44 kennslustundir, sem kosta munu tæplega 120.000 krónur. Skólanefnd hvetur bæjarráð til að samþykkja fjárveitingu til þessarar kennslu.
? Bryndís ræddi möguleika á banni við reykingum í skóla- og íþróttahúsnæði sveitarfélagsins á þorrablótum og öðrum samkomum. Skólanefnd er þessu sammála.
Fundi slitið kl. 19:00


