Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 68
68. fundur
Skólanefnd Hornafjarðar 68. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 23. febrúar 2005 kl. 16:10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Íris Gísladóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Eyrún Axelsdóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Pálína Þorsteinsdóttir (í síma), Stefán Ólafsson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 67. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Mótmæli foreldrafélagsins Krakkahóla vegna breytinga á vistunartíma í leikskólum, framhaldsumræða frá síðasta fundi
Stefán afhenti tölvupóst og bréf frá fimm foreldrum þar sem mótmælt er fram komnum breytingum á vistunartíma. Einnig afhenti hann yfirlit yfir vistunartíma og barnafjölda. Íris og Matthildur greindu frá upplýsingum sem þær höfðu safnað úr sveitarfélögum á Suðurlandi, Norðurlandi og Austurlandi þar sem boðið er upp á 15 mín fyrir og eftir alla vistunartíma í sumum leikskólum en heldur minni sveigjanleika í öðrum hvað þetta varðar. Líkust er útfærslan á Egilsstöðum og Hornafirði. Snæfríður sagði að það hefði áhrif á hópastarf eftir kl. 16 ef boðið væri upp viðbótartíma til 16:15. Eyrún tók í sama streng. Íris lagði áherslu á það góða starf sem fram fer í leikskólum sveitarfélagsins, um það væri enginn efi. Sigríður lagði fram tillögu um að heimilt verði að bæta 15 mínútum aftan við vistunartíma sem lýkur kl. 16. Með því móti skapist aukið svigrúm til að sækja börnin. Annað verði óbreytt frá gildandi reglum. Sagði hún mikilvægt að sátt sé á milli þeirra sem þjónustuna veita og þeirra sem hana kaupa og benti á að þjónustan sé að hluta til greidd af foreldrum. Sigríður lagði áherslu á að leikskólinn sé fyrsta skólastigið og sagði jafnframt það vera sína skoðun að þessi litla breyting ætti ekki að hafa áhrif á skólastarfið. Með þessari tillögu væri komið til móts við hagsmuni foreldra og skapaði ákveðinn sveigjanleika. Skólanefnd samþykkti þessa tillögu með öllum greiddum atkvæðum.
3. Reglur um tryggingar skólabarna, framhaldsumræða frá síðasta fundi
(Pálína kom á fund) Til umfjöllunar voru annars vegar ?Reglur vegna slysa barna í grunnskólum, tónskóla og félagsmiðstöð ungmenna?, drög 1. feb. 05 og hins vegar ?Reglur vegna óhappa og slysa barna í leikskólum?, drög 1. feb. 05. Skólanefnd samþykkir fram lögð drög með þeim breytingum að úr reglum um grunnskóla, 5. lið, hverfi setningin ?eða á heilsugæslustöð? og að í 5. grein reglna um leikskóla komi ákvæði um að foreldrar greiði ekki komugjald við 1. heimsókn leikskólabarna á heilsugæslustöð.
4. Skipulagsbreytingar í Grunnskólanum í Hofgarði?
Stefán greindi frá fyrstu niðurstöðum könnunar meðal foreldra skólabarna í Öræfum. Ljóst er af þeim niðurstöðum að nokkuð skiptar skoðanir eru meðal foreldra hvaða leið skuli valin. Þó megi greinilega lesa út úr könnuninni vilja til að breyta frá núverandi skipulagi. Einnig kynnti hann drög að kostnaðaráætlun. Miðað við þau drög megi gera ráð fyrir árlegum kostnaði við skólabreytingu að upphæð krónur 4,5 ? 5,5 milljónir fyrstu árin en síðan drægi úr kostnaði við lokun heimavistar og breytingu á nemendafjölda í skólaakstri, a.m.k. í nokkur ár. Sigríður sagði það greinilega vera vilja 9 af 11 svarendum að vilji sé til breytinga þó að ekki séu allir á einu máli um hvaða leið verði farin. Skólanefnd sammála því að vinna þurfi áfram úr fram komnum upplýsingum. (Pálína vék af fundi)
5. Skólamálþing 19. febrúar 2005
Sigríður þakkaði fyrir frábæra undirbúningsvinnu þeirra sem komu að þinginu. Upplýst var að mikil ánægja væri meðal þeirra sem þingið sátu, fyrirlestrar góðir og umræður gagnlegar. Afrakstur þingsins geti orðið gott vegarnesti í áframhaldandi umræðu og vinnu í þessum málaflokki. Sigríður taldi æskilegt að skólanefnd héldi vinnufund þar sem farið yrði yfir afrakstur og niðurstöður þingsins.
6. Önnur mál ·
Kynnt 1. drög að skóladagatali 2005 ? 2006. Samkvæmt þeim er gert ráð fyrir að þéttbýlisskólarnir verði settir 22. ágúst og að skólaslit verði 2. júní. Gert er ráð fyrir tveimur stöfluðum dögum í Hafnarskóla og Nesjaskóla en engum í Heppuskóla. Skólanefnd gerir ekki athugasemd við drögin. · Þórhalla spurði um fram komnar hugmyndir um ?fangelsi? í Nesjaskóla og hvort það eigi að vera þar ásamt grunnskóla. Sagðist hún algjörlega andvíg slíkri sambúð. · Bryndís gerði athugsemdir við að kennarar væru að keyra nemendur í tengslum við skólaskemmtanir. · Tekið til afgreiðslu bréf, undirritað af leikskólastjórum, dagsett 17.02. 2005. Í bréfinu er farið fram á að næsta haust megi skólarnir setja saman starfsdag og námskeiðsdag og sleppa haustþingi og nýta þessa daga til námsferðar til Danmerkur. Þessa ferð var fyrirhugað að fara í vor en ekki getur orðið af því vegna aðstæðna í Danmörku á þeim tíma sem fyrirhugaður var. Skólanefnd samþykkir þessa ráðstöfun með starfs- og námskeiðsdag á komandi hausti.
Fundi slitið kl. 18:45


