Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 69
69. fundur
Skólanefnd Hornafjarðar 69. fundur
Fundur haldinn á leikskólum sveitarfélgsins og í ráðhúsinu, miðvikudaginn 16. mars 2005 kl. 14:45
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Sigrún Kapitóla Guðrúnardóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Heimsókn í leikskólana Lönguhóla og Krakkakot
Leikskólastjórar fóru yfir starfsemi skólanna og húsakynni skoðuð. 2. Fundargerð 68. fundar Engar athugasemdir gerðar.
3. Skipulagsbreytingar í Grunnskólanum í Hofgarði
Formaður lagði fram eftirfarandi bókun:
Frá því á miðju ári 2004 hefur skólaganga nemenda á unglingastigi, sem búsettir eru í Öræfum, verið til athugunar hjá fræðsluyfirvöldum. Allar barnafjölskyldur voru heimsóttar í ágúst síðastliðnum og í janúar/febrúar 2005 var lögð könnun fyrir sömu fjölskyldur þar sem leitast var við að fá fram skoðanir foreldranna. Lesa má út úr niðurstöðum könnunarinnar verulegan vilja til breytinga en ekki er einhugur um hvaða leið skuli valin.
Skólanefnd samþykkir að boðið verði upp á nám í 8. bekk við Grunnskólann í Hofgarði frá og með skólaárinu 2005 ? 2006. Árangurinn af þeirri breytingu verði metinn með það í huga að bæta síðar við skólann næstu árgöngum og þannig stefnt að heildstæðum skóla frá 1. ? 10. bekk ef öll rök hníga í þá átt.
Guðmundur lýsti sig sammála þessari samþykkt og lýsti ánægju sinni með hana.
4. Skólastefna sveitarfélagsins
Farið yfir hvernig núgildandi skólastefna var unnin. Rætt var um vinnu annarra sveitarfélaga við slíka stefnumörkun. Fjallað var um hvaða leiðir skyldu farnar við væntanlega vinnu við skólastefnuna. Fram kom að ákveða þurfi vinnufyrirkomulag við gerð skólastefnu og að hefja ýmsa aðra undirbúningsvinnu áður en vinnuhópar hefja störf. Skólanefnd leggur til að hafin verði endurskoðun á skólastefnu sveitarfélagsins.
Lögð er áhersla á sem víðtækasta þátttöku starfsmanna skólanna, foreldra og kjörinna fulltrúa í þeirri endurskoðun. Stefnt skal að því að ný skólastefna liggi fyrir í byrjun árs 2006.
5. Skipulagsbreytingar á leikskólum sveitarfélagsins ? bréf leikskólastjóra á Lönguhólum og í Krakkakoti
Í bréfinu eru tekin fyrir tvö atriði.
Í fyrsta lagi leggja leikskólastjórar til að leikskólarnir verði reknir sem sjálfstæðir skólar með börnum á aldrinum 1 ? 6 ára. Þannig verði horfið frá núverandi skipulagi með aldursskipta leikskóla.
Í öðru lagi er greint frá nauðsyn þess að fjölga leikskólakennurum við báða leikskólana. Vitnað er til skýrslu starfsmanna Kennaraháskóla Íslands, sem til varð við úttekt á leikskólum sveitarfélagsins, en í henni er lögð áhersla á mikilvægi sérmenntaðra kennara á sviði uppeldis og menntunar í leikskólum.
Elín spurði hvort það væri almenn skoðun starfsmanna leikskólanna að breyta þeim í það horf sem lýst er í bréfi leikskólastjóra. Á Lönguhólum eru starfsmenn þessu almennt sammála en mismunandi sjónarmið eru í Krakkakoti meðal starfsmanna. Valdís velti því fyrir sér hvort minnkandi árgangar hafi einhver áhrif á þessa hugmynd. Einnig taldi hún það kost að árgangar verði sem mest saman en skiptist ekki á milli tveggja leikskóla í ekki stærra samfélagi. Þá taldi
Valdís ástæðu til að kanna hug foreldra til þessarar hugmyndar.
Fram kom í máli leikskólastjóranna að með breyttu skipulagi ætti biðlisti síður að myndast en með núverandi fyrirkomulagi. Lögðu þeir áherslu á að vinna að breyttu skipulagi hefjist strax og að nýtt skipulag taki gildi með nýju skólaári í ágúst.
Skólanefnd tekur ekki afstöðu á þessum fundi til þeirra tillagna sem fram koma í bréfi leikskólastjóranna.
Skólanefnd lýsir áhyggjum sínum á því hversu fáir menntaðir leikskólakennarar eru við störf í leikskólum sveitarfélagsins og hvetur til úrbóta á því sviði.
Leggur nefndin til að sveitarfélagið geri allt sem í þess valdi stendur til að laða að réttindafólk til starfa.
Upplýst að 6 ? 8 ófaglærðir leikskólastarfsmenn eru að kanna þann möguleika að hefja leikskólakennaranám í fjarnámi í haust.
6. Önnur mál
Sigríður lagði fram eftirfarandi fyrirspurn sem hún óskar eftir að send verði skólastjórum allra grunnskólanna:
a) Hversu margar kennslustundir samtals hafa kennarar ekki mætt til kennslu á þessu skólaári vegna veikinda?
b) Hversu margar kennslustundir samtals hafa kennarar ekki mætt til kennslu á þessu skólaári vegna veikinda barna sinna?
c) Hversu margar kennslustundir samtals hafa kennarar ekki mætt til kennslu á þessu skólaári vegna fjarveru vegna kennaranám?
d) Hversu margar kennslustundir samtals hafa kennarar ekki mætt til kennslu á þessu skólaári vegna fría?
e) Hversu margar kennslustundir hafa ekki verið kenndar (ef einhverjar eru) og nemendur þá án kennslu af fyrrgreindum ástæðum?
Rætt um vinnu mötuneytisnefndar og framgang mötuneytismála með því fyrirkomulagi sem við búum við í dag.
Fram kom hjá Guðmundi Inga góð reynsla Heppuskóla af því fyrirkomulagi að nemendur skólans matist í KaffiHorninu. Fundi slitið kl. 17:55


