Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð Skólanefndar
46. fundur
Fundur haldinn í Hafnarskóla, miðvikudaginn 15. janúar 2003 kl. 17.10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Brynja Baldursdóttir, Sævar Þór Gylfason og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 45. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skoðunarferð um Hafnarskóla
Þórgunnur fór með fundarmönnum um skólann. Almenn sátt er með bygginguna meðal starfsmanna, einkum nýjasta hluta skólans. Bent á ýmislegt í eldra húsnæði sem betur mætti fara. Miklar breytingar til batnaðar urðu á skólalóð síðastliðið sumar með nýjum leiktækjum. Þórgunnur benti þó á girðingu við íþróttavöll sem hún taldi varasama, þyrfti að fjarlægja yfir vetrartímann.
3. Skólanámskrá Hafnarskóla
Þórgunnur fór yfir þann hluta skólanámskrár sem út er kominn, tilgang hennar og helstu áhersluþætti. Almenni hlutinn er kominn út, bekkjarnámskrár eru í vinnslu. Undir þessum lið sagði Þórgunnur einnig frá eineltisáætlun sem unnin er í samstarfi Hafnarskóla og Heppuskóla. Byggist hún á fyrirmynd sem kennd er við Olweus, sænskan fræðimann (mest unnið í Noregi), sem unnið hefur mikið brautryðjendastarf á þessu sviði. Spurt var um úrræði fyrir bráðgera nemendur. Fram kom að þetta væri atriði sem vantaði almenna stefnu í skólakerfinu. Upplýst var að duglegustu nemendur í 7. bekk fengju að fara í hluta af námsefni 8. bekkjar. Nokkrar fyrirspurnir voru um kennslu í handmennt (textilmennt), einkum hvað væri kennt og hvað ekki. Fjallað var um kennsluaðferðir, m.a. velt upp spurningum eins og hvort einhver ein aðferð væri annarri betri. Inn í þetta blandaðist umræða um kennaraskipti, kosti og galla þess að skipta um kennara á eins til tveggja ára fresti.
Töluverðar umræður urðu um kennara án réttinda sem stunda fjarnám með kennslu. Spurt var um aðstöðu þeirra og stuðning sveitarfélagsins. Upplýst var um reglur í nokkrum sveitarfélögum sem svipar mjög til þeirra vinnureglna sem stuðst er við í okkar sveitarfélagi.
4. Önnur mál
· Kynnt drög að leigusamningi við Flugleiðahótel vegna leigu á um 50% af húsnæði því sem tilheyrir Nesjaskóla, heimavist og mötuneyti. Skólanefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti að því gefnu að hótel- og veitingarekstur hafi ekki áhrif á skólastarf.
· Rætt um væntanlegar handmenntastofur í Vöruhúsi og hvenær þær gætu orðið tilbúnar til kennslu.
Fundi slitið kl. 19:10


