Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð Skólanefndar
38. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 20. febrúar 2002 kl. 16.10
Mætt voru: Ingunn Jónsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ármann Guðmundsson (í fjarfundarsambandi), Guðný Svavarsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 37. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Kynning á þróunarverkefni í Hafnarskóla
Þórgunnur Torfadóttir aðstoðarskólastjóri kynnti vinnu við þrónarverkefni í Hafnar-skóla sem ber yfirskriftina “framtíðarskólinn.” Sagði Þórgunnur að unnið væri með menningu skólans, sjálfa skólamenninguna, og verkefnið því mjög víðfemt. Sagði hún að mikinn tíma tæki að festa breytingar í sessi. Með verkefninu er lögð áhersla á þemavinnu þar sem kafað er dýpra í ákveðin viðfangsefni í stað hefðbundins yfirlitsnáms. Samfara þessu hefur verið ákveðið að taka upp samkennslu tveggja árganga. Augum er beint að einstaklingnum þar sem lögð er áhersla á að allir, burtséð frá námshæfileikum, fái verkefni við hæfi. Þórgunnur gat og um samstarf við skóla á höfuðborgarsvæðinu og gagnkvæmar heimsóknir starfsmanna á milli skóla.
Urðu um þessar breytingar töluverðar umræður. M.a. var spurt um fyrirmyndir, hugmyndafræði, samkennslu, hversu langan tíma tilraunin skuli taka. Greint var frá foreldrakynningu í Hafnarskóla. Var sá fundur mjög vel sóttur, undirtektir foreldra góðar og greinilegur stuðningur við verkefnið. Stefán lýsti þakklæti sínu til starfsmanna Hafnarskóla að leggja út í þetta þróunarstarf. Einnig greindi Þórgunnur frá væntanlegu samstarfi við erlenda skóla (Comeniusarverkefni) þar sem skólarnir vinna saman að breytingum á skólastarfi (Þórgunnur vék af fundi).
3. Skipan þriggja manna starfshóps
Á 156. fundi bæjarráðs var m. a. fjallað um 37. fundargerð skólanefndar. Vegna óska foreldraráðs Nesjaskóla um mögulegan flutning á 4. bekk úr Hafnarskóla í Nesjaskóla frá og með næsta skólaári var eftirfarandi samþykkt í bæjarráði: “Bæjarráð vísar erindinu til framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs og leggur áherslu á vandaða greinargerð út frá faglegu og fjárhagslegu sjónarmiði.”
Með hliðsjón af samþykktum bæjarráðs og skólanefndar leggur framkvæmdastjóri sviðsins það til að skólanefnd skipi þriggja manna starfshóp sem vinni ásamt honum að skoðun þessa máls.
Samþykkt var að í starfshópnum sitji Ingunn Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir og Guðný Svavarsdóttir.
Framkvstj. kynnti drög að vinnuáætlun fyrir starfshópinn.
4. Svar framkvstj. vegna athugasemda við skólaakstur úr Öræfum og Suðursveit
Á 37. fundi skólanefndar fjallaði Ármann um lengingu á skólaakstri úr Öræfum samfara fjölgun nemenda frá og með næsta skólaári. Vegna þessa máls lagði framkvstj. fram minnisblað, dags. 4. febrúar 2002. Sýnt er fram á verulega útgjaldaaukningu samfara breytingum á akstri, einkum ef farið yrði að aka á tveimur bílum úr Suðursveit og Öræfum. (Guðrún vék af fundi) Skólanefnd mælir ekki með breytingum á núverandi fyrirkomulagi á akstri úr Öræfum og Suðursveit á mánudagsmorgnum.
5. Önnur mál
· Lagt fram bréf menntamálaráðuneytis þar sem kynntar eru breytingar á lögum um grunnskóla.
· Afhentar upplýsingar frá Hagstofu Íslands um nemendafjölda í skólum í október 2001.
Fundi slitið kl. 18:25


