Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 77
77. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 23. nóvember 2005 kl. 16:10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Íris Gísladóttir, Guðlaug Úlfarsdóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 76. fundar
Í ljósi umræðna og bókunar á 76. fundi skólanefndar er rétt að benda á að allt meiriháttar viðhald er bókfært á eignasjóð þar sem það er greint niður á þær stofnanir sem viðhalds njóta ár hvert. Dreift var yfirliti vegna innri viðskipta árið 2005 (eignasjóður).
2. Fjárhagsáætlun 2006
Farið yfir útsend gögn. Á fjárhagsáætlun fyrir árið 2006 er gert ráð fyrir að verja til fræðslu- og uppeldismála kr. 475.970.000. Skatttekjur sveitarfélagsins eru kr. 811.300.000. Greint frá bókun bæjarráðs á 310. fundi ráðsins en þar segir: ?Miklar umræður urðu um foreldrastarf í skólum og samþykktar voru tillögur skólanefndar um að leggja kr. 300 þús. til foreldrafélaga í leik- og grunnskólum.? Skólanefnd leggur áherslu á að haft verði samstarf við skólastjórnendur vegna meiriháttar viðhalds stofnana þeirra sem þeir bera ábyrgð á.
3. Sundlaug og fleiri íþróttamannvirki
Farið yfir útsend gögn þar sem meðal annars eru sýndir möguleikar á staðsetningu nýrrar sundlaugar sem nú er til umræðu og hugmyndir um fyrirkomulag á knattspyrnu- og frjálsíþróttasvæðum á Sindravöllum. Skólanefnd leggur áherslu á að við staðsetningu íþróttamannvirkja þurfi að hafa í huga notkun skólanna á þessum mannvirkjum og að þau verði í sem bestum tengslum og nálægð við þá skóla sem þau nýta. Hafa þarf einnig í huga þá möguleika að samnýta starfsfólk í íþróttahúsi og sundlaug sem getur komið þeim sem nota þessi hús til góða, svo sem að baðverðir af báðum kynjum verði ávallt til staðar. Einnig leggur nefndin til að byggð verði 25 metra laug. Fjórir af fimm nefndarmönnum (Elín sat hjá) lögðu til að byggð verði upp frjálsíþróttaaðstaða á Sindravöllum, slíkt komi skólunum til góða. Skólanefnd tekur ekki undir þá skoðun að hægt sé að fresta dúkaskiptum á núverandi sundlaug. Hún sé mikilvægur hluti af íþróttakennslu skólanna og því ekki hægt að taka neina áhættu með rekstur laugarinnar. Því er ekki tekið undir bókun æskulýðs- og tómstundaráðs þar sem segir: ?Ráðið er mótfallið því að farið verði í dúkaskipti þar til tekin hefur verið ákvörðun um byggingu nýrrar sundlaugar.?
4. Önnur mál
· Sigríður kynnti bréf frá Sigurði Kr. Sigurðssyni, dags. 1. september 2005, þar sem farið er fram á að sveitarfélagið veiti styrk vegna tónskólagjalda Sólveigar Sigurðardóttur við Tónlistarskóla Reykjavíkur. Formaður tók fram að láðst hafi að kynna þetta mál fyrr og baðst afsökunar á því. · Aðgengismál í skólunum á Höfn. Farið yfir samantekt frá fundi sem haldinn var 14. nóv. 2005 auk viðbótarupplýsinga frá skólastjóra Heppuskóla. · Þróun útgjalda til skólamála á landinu 1997 ? 2004. Elín fór yfir erindi sem flutt var á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2005. Þar kemur fram mikil fjölgun starfsmanna og útgjaldaaukning vegna grunnskólanna á þessu tímabili. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um þróunina á Hornafirði en reikna má með að hún sé mjög í samræmi við það sem gerst hefur hjá öðrum sveitarfélögum. Fram kom það sjónarmið að mikilvægt sé að hafa ávallt í huga nýtingu á því fjármagni sem veitt er til skólamála. · Hávaði í umhverfi barna, upplýsingar sem fram komu á ráðstefnu um þetta mál í apríl sl. Þar var meðal annars fjallað um ?hvernig hávaði getur valdið streitu og þreytu og haft neikvæð áhrif á einbeitingu.? · Sigríður kom með fyrirspurn til starfsmanna tæknideildar um hvenær eigi að laga lóð á bak við Hafnarskóla, einkum bílastæði og aðgengi að skólalóðinni og skólanum. · Bryndís ræddi um fjarvistir kennara í skólum vegna þess að þeir væru í leyfi. Óskað er eftir að skólastjórar upplýsi um fjarvistir vegna leyfisdaga kennara á haustönninni. Fundi slitið kl. 18:00


