Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skólanefndar 78

78. fundur

Fundur haldinn í Sindrabæ og ráðhúsinu, miðvikudaginn 25. janúar 2006 kl. 14:50

Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Íris Gísladóttir, Guðlaug Úlfarsdóttir, Rósa Valdimarsdóttir, Þorvaldur J. Viktorsson, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Stefán Ólafsson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

1. Verkefnið Blátt áfram ? fyrirlestur

Fyrirlesturinn var í Sindrabæ þar sem mætt var starfsfólk skólanna, starfsmenn skólaskrifstofu og skólanefndarmenn. Almenn ánægja var með fyrirlesturinn og töldu fundarmenn fulla ástæðu til að fyrirlestrar sem þessir verði haldnir reglulega.

2. Fundargerð 77. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

3. Svör skólastjórnenda vegna fyrirspurnar á síðasta fundi

Lesin voru upp svör skólastjóra Hafnarskóla, Heppuskóla og Nesjaskóla.

Bryndís sagðist hafa verið fyrirspyrjandi á síðasta fundi. Ræddi hún röskun sem verði á kennslu við slík leyfi, af því hafi hún fyrst og fremst áhyggjur.

Þorvaldur sagði að þessi mál leysist almennt vel og sagðist vonast til að skólanefnd treysti sér til að leysa þau.

Guðmundur sagði að vissulega hafi þessi fyrirspurn valdið óánægju hjá skólastjórnendum og tók um leið undir þau orð að slík leyfi valdi einhverri röskun á skólastarfi þó að allt sé gert til að hafa röskunina sem minnsta. Þá sagði hann skólastjórnendur vera sammála um það að sýna kennurum ákveðinn sveigjanleika enda væru þeir bundnir af því að taka allt sitt leyfi að sumri til.

Guðlaug og Rósa lýstu hvernig allt sé gert í skólunum til að undirbúa slík forföll sem best enda væru þau kunn fyrirfram.

Sigríður sagði að þessari fyrirspurn væri ekki beint gegn einum eða neinum heldur vera eina af skyldum nefndarinnar að fylgjast með skólastarfi. Sagði hún jafnframt að það væri á engan hátt vilji nefndarinnar að vera með neinn núning við skólana, við þá þurfi að vera gott samstarf. Sigríður lagði fram eftirfarandi tillögu að bókun:

Skólanefnd telur svörin vera skýr og greinagóð. Nefndin telur að fjarvistir kennara vegna leyfa séu ekki meiri en búast má við. Voru skólanefndarmenn þessu sammála.

Samþykkt að formaður skólanefndar og starfsmaður nefndarinnar svari fyrirspurnum sem fram koma í bréfum skólastjórnenda. Þau svör verði borin undir nefndarmenn áður en þeim verði endanlega svarað.

Guðmundur lagði áherslu á gott samstarf skóla og skólanefndar, þau þurfi að vera í jákvæðum farvegi.

4. Erindi bæjarráðs vegna námskeiða í tengslum við fyrirhugaðar breytingar á námsskipan til stúdentsprófs.

Á 319. fundi bæjarráðs var eftirfarandi fært til bókar: ?Rætt um námskeið sem menntamálaráðuneytið hyggst standa fyrir í íslensku, dönsku, ensku og stærðfræði. Ljóst er að fari kennarar á þessi námskeið kallar það á veruleg útgjöld fyrir sveitarfélögin vegna fjarveru kennara frá vinnu í námslotum, ferðakostnaðar og dagpeninga. Er það ekki í samræmi við yfirlýsingar ráðuneytisins um að endurmenntun kennara vegna fyrirhugaðra breytinga á námi til stúdentsprófs auki ekki útgjöld sveitarfélaganna. Málinu vísað til umfjöllunar í skólanefnd.?

Í skýrslu menntamálaráðuneytisins, Breytt námsskipan til stúdentsprófs, bls. 62, segir orðrétt: ?Gera má ráð fyrir að allir kennarar 8. ? 10. bekkjar sem kenna dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði fari á námskeið sem undirbýr þá fyrir breytingar á aðalnámskrá og viðfangsefnum þessara námsgreina. Námskeiðin verði haldin víða um land.? Í tengslum við þessar breytingar hefur nú verið boðið upp á nám í stærðfræði í Kennaraháskólanum í Reykjavík. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum er brottfall úr námskeiðinu orðið yfir 70% sem teljast verðu mun meira en eðlilegt getur talist. Vekur þetta mikla brottfall nokkurn ugg og eðlilegt að hafa áhyggjur af öðrum námskeiðum sem halda skal í tengslum við breytta námsskipan. Einnig er ástæða til að efast um að yfirlýsingar þess efnis að breytingar á námsskipan muni ekki leiða til aukins kostnaðar fyrir sveitarfélögin standist. Skólanefnd samþykkir að senda eftirfarandi fyrirspurn til menntamálaráðuneytisins:

1. Ljóst er að ekki verða haldin námskeið í öllum sveitarfélögum landsins. Því er spurt hvort menntamálaráðneytið muni greiða kostnað vegna ferðalaga kennara á námskeiðsstað og dagpeninga í samræmi við ákvæði kjarasamninga.

2. Mun ráðuneytið greiða kostnað við kennslu vegna fjarveru kennara í námslotum þegar námskeið eru haldin á starfstíma grunnskólanna?

3. Hvað hyggst ráðuneytið gera til að koma í veg fyrir verulegt brottfall úr þessum námskeiðum?

4. Hyggst ráðuneytið skylda alla grunnskóla landsins til að senda viðkomandi kennara í 8. ? 10. bekk á námskeið í dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði?

5. Önnur mál

· Greint frá bréfi Ásatrúarfélagsins þar sem þess er farið ?á leit við fræðslu- og skólaskrifstofur Íslands að meðfylgjandi erindi, ?Kynning Ásatrúarfélagsins á heiðnum sið?, verði komið á framfæri við alla grunnskóla landsins.? Málinu vísað til starfsmanns nefndarinnar.

· Kennsla í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræði ? samantekt menntamálráðuneytisins. Skýrsla þessi er aðgengileg á heimasíðu ráðuneytisins, www.menntamalaraduneyti.is.

· Foreldraráð í grunnskólum skólaárið 2004 ? 2005 - samantekt menntamálráðuneytisins. Skýrsla þessi er aðgengileg á heimasíðu ráðuneytisins, www.menntamalaraduneyti.is.

· Skólastefna sveitarfélagsins ? verkstaða. Stýrihópur hefur sent frá sér til vinnuhópanna þriggja 1. drög að stefnunni. Komnar eru athugasemdir frá grunnskólahópi og leikskólahópi sem ekki hafa verið teknar fyrir í stýrihópnum enn sem komið er.

· Bréf Vinnueftirlits ríkisins. Þar segir meðal annars: ?Vinnueftirlit ríkisins er að hefja vinnuverndarátak í grunnskólum landsins með það að markmiði að efla innra vinnuverndarstarf og bæta aðbúnað, hollustuhætti og líðan starfsmanna. Stefnt er að því að skipulagt vinnuverndarstarf verði komið á í öllum skólum landsins á skólaárinu 2006 ? 2007.

· Þórhalla ræddi aðgengi í Heppuskóla og tímasetningar á framkvæmdum.

Fundi slitið kl. 18:30




Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica