Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 81
81. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, fimmtudaginn 27. apríl 2006 kl. 16:10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir,Elín Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Snorri Aðalsteinsson, Matthildur Ásmundardóttir, Rósa Valdimarsdóttir, Guðlaug Úlfarsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Eygló Illugadóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 80. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Bréf foreldrafélagsins Krakkahóla
Á 332. fundi bæjarráðs var málinu vísað til skólanefndar. Formaður fór yfir bréfið en í því er fjallað um fjögur mál, gjaldfrjálsan leikskóla, garða leikskólanna, sumarlokanir og fjölgun fagmenntaðra leikskólakennara í leikskólum.
„Bókun leikskólastjóra Krakkakots og Lönguhóla:
Gjaldfrjáls leikskóli: Stjórnendur leikskólans taka undir að ekki hefur verið mikil umfjöllun um gjaldfrjálsan leikskóla i sveitarfélaginu og þykir það miður. Við myndum að sjálfsögðu fagna hverju skerfi í þá átt þar sem það yrði ekki bara góð kjarabót fyrir barnafjölskyldur heldur einnig góð “auglýsing” út á við og jákvætt skref í þá átt að fá fleira fólk til að flytja hingað. Auk þess jafnar það möguleika allra barna á leikskólagöngu.
Garðar leikskólanna: Þetta er ekki nýtt vandamál og að sjálfsögðu er löngu kominn tími á að klára þetta. Ef koma á í veg fyrir myndun pollsins stóra þá þarf að bretta upp ermar og gera það að alvöru en ekki bara að setja plástur á sárið. Þetta eru miklu stærri framkvæmdir en það að plástur haldi.
Sumarlokanir: Þrenn rök liggja til grundvallar:
a) Fjárhagsleg – það er ódýrara fyrir sveitarfélagið að loka í fjórar vikur því það kostar ekki jafn miklar afleysingar.
b) Stjórnunarleg – það kostar minna skipulag vegna sumarleyfa starfsmanna og barna.
c) Fagleg – það eru skýr lok og upphaf á skólaárinu og meiri festa í starfseminni – börnin geta gengið að félögum sínum og kennurum.
4 vikna samfellt sumarfrí markar ákveðinn endi skólaársins og upphaf nýs. Reynsla leikskólanna í gegnum árin sýnir að langstærsti hluti foreldra fer í sumarfrí á tímabilinu frá miðjum júlí og fram í miðjan ágúst. Fyrir nokkrum árum var gerð könnun hjá foreldrum á Lönguhólum sem sýndi afgerandi niðurstöður í þessa átt. Mjög lítill hópur fólks er að fara í sumarfrí í maí, júní eða seinni hluta ágústmánaðar. Þegar barn byrjar í leikskóla er foreldrum strax gerð grein fyrir því hvenær sumarfríið er og geta þeir því gengið út frá því. Það er mikilvægt að hvert barn fái a.m.k. 4 vikna samfellt sumarfrí og auðvitað er best ef það getur varið því með foreldrum sínum.”
Einnig greindi Snæfríður frá þeim tilraunum sem gerðar hafa verið til að fá hingað menntaða leikskólakennara og hvatningu til starfsmanna leikskólanna um að fara í réttindanám. Upplýsti hún að fjórir starfsmenn í Krakkakoti séu í fjarnámi í leikskólafræðum.
Matthildur, fulltrúi foreldrafélagsins, taldi að bjóða þurfi meira val um sumarlokun en lagði áherslu á að hvert barn fengi 4 vikna samfellt frí.
Skólanefnd tekur undir að skoða þurfi hugmyndir um gjaldfrjálsan leikskóla. Skólanefnd leggur áherslu á að unnin verði framkvæmdaáætlun um endurbætur og endurnýjun á lóðum og leiktækjum og að framkvæmdir hefjist strax á lokunartíma leikskólanna í sumar. Skólanefnd tekur undir sjónarmið leikskólastjóranna um að sumarlokun eigi að vera samfelldar fjórar vikur á þeim tíma sem nú er.
3. Skóladagatal 2006 - 2007
Skóladagatal Nesjaskóla, Hafnarskóla og Heppuskóla lagt fram til samþykktar. Samkvæmt því yrði skólasetning þann 21. ágúst næstkomandi og skólaslit 4. júní 2007. Fyrir og eftir þessar dagsetningar kæmu starfsdagar kennara.
Skólanefnd samþykkir fram lagt skóladagatal fyrir þessa skóla.
4. Umsókn Hafnarskóla um aðstoðarkennara og stuðningsfulltrúa
Sótt er um að haldið verði áfram með sama skipulag og verið hefur undanfarin tvö ár, þ.e. að ráða tvo aðstoðarkennara og einn stuðningsfulltrúa. Stjórnendur skólans telja mjög góða reynslu vera af þessu fyrirkomulagi. Það auðveldi mjög þá þróun sem hafin er í átt að einstaklingsmiðuðu námi og dragi stórlega úr kostnaði við forfallakennslu en 4/5 af þeirri kennslu er sinnt af aðstoðarkennurum. Samþykkt að mæla með þessari umsókn skólans.
5. Frumkvöðlanámskeið fyrir nemendur í Heppuskóla
Guðmundur gerði grein fyrir hugmyndinni sem gengur út á það að halda þriggja daga námskeið fyrir allt að 20 nemendur skólans. Farið yrði með þá í vinnu- og þjálfunarbúðir og er meðal annars horft til Hrollaugsstaða í því sambandi. Aðalkennari á námskeiðinu yrði G. Ágúst Pétursson sem hefur mikla reynslu á þessu sviði. Gert er ráð fyrir að greiðslur til námskeiðshaldara yrðu kr. 350.000.- og við það bættist launakostnaður vegna eins starfsmanns skólans. Sótt hefur verið um styrk til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands sem ekki hefur enn verið afgreitt af hálfu sjóðsins.
Skólanefnd mælir með að stefnt verði að þessu frumkvöðlanámskeiði.
6. Önnur mál
· Guðmundur dreifði drögum að skipulagi yfir nám nemenda í 10. bekk að loknum samræmdum prófum í vor. (Snorri mætti á fund)
· Íslensku menntaverðlaunin, stofnuð af forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni. Verðlaun þessi voru fyrst veitt á síðasta ári. Í ávarpi forseta í meðfylgjandi kynningarbæklingi segir meðal annars: „Þegar ég ákvað að stofna Íslensku menntaverðlaunin var það von mín að þau stuðluðu að samstöðu um skólastarfið og yrðu lóð á vogarskálar til þess að framlag kennara yrði metið að verðleikum.” Í ávarpi formanns Sambands íslenskara sparisjóða, bakhjarls Íslensku menntaverðlaunanna, segir meðala annars: „Verðlaunin eru jafnframt kærkomin hvatning til kennara og skólastjórnenda til að halda áfram þróun og uppbyggingu grunnskólamenntunar þeirrar kynslóðar sem er að erfa landið.” Óskað er eftir að þessi verðlaun verði kynnt fyrir skólanefndum, foreldraráðum, foreldrafélögum, sveitarstjórnum, nemendum og foreldrum.
· Afhent grein úr tímaritinu Glæðum eftir Rúnar Sigþórsson og fjallar hún um samræmd próf.
· Kynntur bæklingur Heppuskóla, „Hugmyndir og skipulag vegna undirbúnings samræmdra prófa”.
Fundi slitið kl. 17:45


