Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 90
90. fundur
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Torfi Friðfinnsson, Stephen Róbert Johnson, Sigríður Kristinsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Guðlaug Úlfarsdóttir, Rósa Á. Valdimarsdóttir, Guðmundur H. Gunnarsson, Þórgunnur Torfadóttir, Þorvaldur J. Viktorsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 90. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Eftirfylgni könnunar á starfsemi leikskóla, erindi frá menntamálaráðuneytinu
Könnunin nær til allra leikskóla í landinu og var svarhlutfall 76%. Fram kemur í yfirliti að upplýsingar hafi borist frá Krakkakoti og Lönguhólum en ekki frá leikskóladeildinni í Hofgarði. Skólanefnd leggur til að starfsmaður nefndarinnar hafi sambandi við skólastjóra í Hofgarði vegna skorts á upplýsingum frá leikskóla-deildinni í Hofgarði. Undir þessum lið var einnig rætt um uppeldisstefnur leikskólanna á Höfn en þær má finna á heimsíðum skólanna.
3. Erindi menntamálaráðuneytisins: Æskulýðsrannsóknirnar Ungt fólk, menntun, menning, tómstundir og íþróttaiðkun ungmenna á Íslandi.
Frá árinu 1992 hefur menntamálaráðuneytið stuðlað að framkvæmd rannsóknanna Ungt fólk, þar sem kannaðir eru þættir sem snúa að menntun, menningu, tómstundum og íþróttaiðkun ungmenna. Skýrslan nær til þeirra nemenda sem voru í 9. og 10. bekk í grunnskólum landsins vorið 2006. Þrátt fyrir að ekki liggi fyrir sérstök úttekt á stöðu þessa aldurshóps á Hornafirði má draga þær ályktanir að niðurstöður könnunarinnar séu einnig lýsandi fyrir okkar nemendur. Sigríður óskaði eftir að fá skýrsluna og var undir það tekið.
4. Skýrsla menntamálaráðherra til Alþingis um framkvæmd skólahalds í grunnskólum (Skýrslan er á vef ráðuneytisins.)
Skýrslan nær til framkvæmdar skólahalds í grunnskólum landsins skólaárin 2001-2002, 2002-2003 og 2003-2004. Niðurstöður eru ekki greindar eftir sveitarfélögum eða skólum.
5. a) Heimild menntamálaráðuneytis til Sveitarfélagsins Hornafjarðar – undanþága frá lögum um grunnskóla. b)Tillaga að stjórn sameinaðs grunnskóla
a) Farið yfir útsent bréf menntamálaráðuneytisins, dagsett 31. janúar 2007. Með bréfinu heimilar menntamálaráðherra Sveitarfélaginu Hornafirði að gera tilraun með nýtt stjórnunarform í sameinuðum grunnskóla á Hornafirði.
b) Formaður skólanefndar lagði fram eftirfarandi bókun: Fyrir liggur eftirfarandi heimild menntamálaráðherra, dagsett 31. janúar 2007: „Menntamálaráðherra heimilar Sveitarfélaginu Hornafirði með vísan til 53. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995 að gera tilraun með nýtt stjórnunarform í sameinuðum grunnskóla á Hornafirði, til næstu þriggja ára frá skólaárinu 2007-2008 að telja. Sveitarstjórn Hornafjarðar fær því undanþágu frá ákvæðum laga og reglugerða um fyrirkomulag stjórnunar grunnskóla. Menntamálaráðuneytið setur það skilyrði fyrir tilraun með nýtt stjórnunarform að ávallt sé ljóst gagnvart öllum aðilum hver sé forsvarsmaður og fyrsti aðili skólans, þ.m.t. ráðuneytinu og stofnunum skólakerfisins.” Með hliðsjón af framangreindri samþykkt menntamálaráðherra samþykkir skólanefnd að við sameinaðan grunnskóla starfi þrír skólastjórar og tveir deildarstjórar. Jafnframt er samþykkt að verkefni sérkennslufulltrúa við skólaskrifstofu færist yfir til skólans og falli undir starfssvið annars tveggja deildarstjóra. Í ljósi fyrri samþykkta er áréttað að verði breytingar á hópi stjórnenda á því tímabili sem heimild menntamálaráðherra nær til muni fyrirkomulag skólastjórnunar verða endurskoðað. Í lok þessa þriggja ára tímabils fari fram faglegt og fjárhagslegt mat á hvernig til hafi tekist og í ljósi þess tekin ákvörðun um fyrirkomulag stjórnunar til lengri tíma litið.
Sigríður fór yfir málið og sagði að sameining skólanna undir eina skólastjórn og að breyting verði á skipulagi sérkennslumála sé í anda þess sem hefur verið til umræðu allt frá skólamálaþinginu í febrúar 2005. Spurði hún hvort deildarstjóri sérkennslu verði með önnur verkefni á sínum höndum. Fram kom að það verði meginstarf þess deildarstjóra. Einnig velti Sigríður fyrir sér hvers vegna þyrfti annan deildarstjóra. Farið var yfir helstu störf hins deildarstjórans sem snúa að samræmingu skólastiganna, samþættingu náms, sjálfsmati skólans og foreldrasamskiptum. Framangreind bókun um skipan skólastjórnar í sameinuðum grunnskóla borin undir atkvæði og hún samþykkt með fjórum atkvæðum gegn einu.
Sigríður sagðist ekki geta samþykkt þetta. Hún vildi sjá þrjá skólastjóra og einn deildarstjóra en ekki tvo. Hún sagðist telja að nú væri tækifæri án uppsagnar að koma því skipulagi á. Fram kom að hjá kennurum sé bjartsýni á að þetta sé mjög góð samþykkt fyrir skólaumhverfið. Það heyrist ekki neinar raddir sem séu á móti þessu nýja skipulagi. Þá væri mikil ánægja með það í skólunum að hægt verði að gera þessar skipulagsbreytingar án átaka í skólunum.
6. Önnur mál
- Torfi spurði um hvernig samskiptum væri háttað á milli íþróttahúsanna og skólanna í sambandi við eineltismál. Fram kom að starfsmenn íþróttahúsa hafi ekki komið mikið að umræðu um þau mál. Torfi lagði áherslu á að þeir þyrftu að vera með í þeirri vinnu með skólunum. Guðlaug kom inn á nauðsyn þess að til staðar séu baðverðir af báðum kynjum í íþróttahúsinu. Fram kom að íþróttahús og sundlaugar séu viðkvæmir staðir þegar kemur að einelti.
- Sigríður ræddi um bréf kennara sem ekki hefur verið tekið til umræðu í skólanefnd. Þá gerði hún að umtalsefni að nemandi hafi komið heim úr Heppuskóla með þær upplýsingar að von væri á verkfalli kennara á næsta skólaári. Guðlaug tók undir að það væri alvarlegt ef svo hafi verið og skýrði auk þess hvað gæti hafa verið til umræðu.
- Sigríður gerði að umtalsefni skólatíma í leikskólum. Spurði hvort búið væri að auglýsa skólatíma leikskólanna eins átt hafi að gera í byrjun þessa árs. Fram kom að ekki hafi verið auglýstur nýr skólatími í leikskólum.
Fundi slitið kl. 17:40


