Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 94
94. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 13. júní 2007 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Anna María Ríkharðsdóttir, Gunnar Sigurjónsson, Bryndís Hólmarsdóttir, Rósa Á. Valdimarsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 93. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Nafn og merki sameinaðs grunnskóla
Farið yfir tillögur um útfærslu á merki skólans. Samþykkt að þessi vinna verði á hendi framkvæmdastjóra sviðsins í samvinnu við skólanefndina.
Samþykkt samhljóða að nafn hins nýsameinaða skóla verði Grunnskóli Hornafjarðar
Undir þessum lið var farið yfir útsenda próförk (ljósrit) af skólastefnunni sem verið er að búa undir prentun og útgáfu.
3. Lengd viðvera, aðsókn og kostnaður
Fram kemur í meðfylgjandi yfirliti að verulegur munur er á tekjum af lengdri viðveru og útgjöldum sem eru mun meiri. Aðsókn á lengdri viðveru síðastliðið skólaár var á bilinu 9 ? 14 nemendur. Einnig dreift yfirliti yfir gjaldskrár lengdrar viðveru í nokkrum skólum landsins. Fram kom sú skoðun að gjald fyrir lengda viðveru sé hér nokkuð hátt. Samþykkt að koma með tillögur að gjaldskrá lengdrar viðveru á næsta fundi nefndarinnar.
4. Niðurstöður samræmdra prófa
Guðmundur Ingi fór yfir samantekt á niðurstöðum samræmdra prófa í 10. bekk á þessu skólaári. Fram kemur að árangur nemenda Heppuskóla er undir landsmeðaltali. 27 nemendur luku framhaldsáfanga við FAS í 32 áföngum á þessu skólaári og tóku þeir ekki samræmd próf í viðkomandi greinum sem hefur bein áhrif á niðurstöður samræmdra prófa við skólann. Fram kom það sjónarmið að bættur árangur verði eitt af meginverkefnum hins nýsameinaða skóla.
5. Breyting á texta skólastefnunnar í ljósi áður samþykktra breytinga á stöðu sérkennslufulltrúa
Samþykkt að fresta þessum lið.
6. Önnur mál
- Greint frá fyrirhuguðum samningum við Halldór Sævar Birgisson um heimavist á næsta skólaári.
- Greint frá stöðu í kennararáðningum. Til skoðunar er að setja 6. bekk í eina bekkjardeild, 27 nemendur.
Fundi slitið kl. 17:30


