Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 97
97. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 24. október 2007 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Ingibjörg Ævarr Steinsdóttir, Gunnar Sigurjónsson, Sigríður Kristinsdóttir, Guðlaug Úlfarsdóttir, Sigrún Kapitóla Guðrúnardóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Pálína Þorsteinsdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 96. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Fjárhagsætlun 2008
Farið yfir útsend gögn ? deildaryfirlit ? fyrir fræðslumálin og spurningum svarað. Sigríður taldi eðlilegt að við gerð fjárhagsáætlunar 2008 verði gjöld fyrir lengda viðveru lækkuð umfram það sem nú er og að jafnframt verði tekinn upp systkinaafsláttur á milli skólastiga, þ.e. á milli leik- og grunnskóla. Guðmundur fór yfir fjárhagsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar. Greindi hann frá því að óskað væri eftir 1,3 millj. til viðbótar við útgjöld vegna náms- og vettvangsferða umfram þá 1,8 milljón sem fór í þennan lið árið 2006. Taldi Guðmundur ramma skólans vera sanngjarnan og að hægt verði að standa við hann. Einnig fór hann yfir stofnbúnaðaráætlun og sagði m.a. að skólastjórnendur treystu sér ekki til að gera áætlun til þriggja ára að svo komnu máli, horfa þurfi til þess hvernig grunnskólinn komi til með að líta út næstu árin. Pálína sagði rammann sanngjarnan. Hún sagðist ekki sjá fram á mikla þörf á endurnýjun búnaðar þó alltaf komi eitthvað upp á. Gunnar taldi eðlilegt að foreldrar tækju þátt í að greiða fyrir ferðir nemenda. Stefán greindi frá bréfi sem hann hafi sent menntamálaráðuneytinu með spurningum um kostnaðarþátttöku foreldra í ákv. ferðalögum. Sigríður sagðist vilja vita hvaða ferðir skólinn væri að fara. Sagðist Guðmundur munu senda nefndarmönnum yfirlit yfir þær. Pálína greindi frá fjáröflun nemenda í Grunnskólanum í Hofgarði með árshátíð o. fl.
3. Skipting fjár til foreldrastarfs í skólum sveitarfélagsins árið 2007
Samþykkt samhljóða að skipta þeim 300.000.- kr. sem eru á fjárhagsáætlun og ætluð til foreldrastarfs með eftirfarandi hætti: Foreldrafélag Grunnskóla Hornafjarðar 187.500. og foreldrafélagið Krakkahólar kr. 62.500., skipt eftir fjölda nemenda. Til foreldrastarfs við Grunnskólann í Hofgarði kr. 25.000. og til foreldrastarfs við Tónskóla A-Skaft. kr. 25.000., ekki skipt eftir nemendafjölda. Sigrún Kapitóla og Pálína greindu frá dæmum um hvernig þessu fé hafi verið varið.
4. Tilkynning menntamálaráðuneytisins um sérúrræði fyrir lesblinda nemendur
Um er að ræða sérúrræði fyrir lesblinda nemendur á samræmdum prófum í 4. og 7. bekk haustið 2007. Er þeim heimilt, telji foreldrar og kennarar ástæðu til, að sleppa lesskilningshluta prófsins í íslensku. Undir þessum lið var einnig rætt um gildi samræmdra prófa.
5. Dagur íslenskrar tungu
Dagur íslenskrar tungu verður 16. nóvember á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar.
6. Skólaþing 2007
Skólaþing sveitarfélaga verður haldið á Hótel Nordica föstudaginn 30. nóvember nk.
7. Önnur mál
- Tilkynning menntamálaráðuneytisins um stuðning við dönskukennslu á Íslandi. Einnig var greint frá dönskum gistikennurum á Íslandi o.fl. í þá veru. Greint frá einingarbæru viðbótarnámi fyrir kennara vegna endurskoðunar á námskrám.
- Erindi frá Landvernd ? ?Skólar á grænni grein?. Í erindinu er fjallað um Grænfánann sem umhverfismerki fyrir skóla. Guðmundur sagði skólann nokkuð hafa skoðað þetta mál. Urðu nokkrar umræður um umhverfismál undir þessum lið. Greint frá vinnu starfshóps um félagsmál í framhaldi af fyrirspurn þar um.
Fundi slitið kl. 17:35


