Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 98
98. fundur
Skólanefnd Hornafjarðar 98. fundur FUNDARGERÐ Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 28. nóvember 2007 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar. Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Torfi Friðfinnsson, Gunnar Sigurjónsson, Sigríður Kristinsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Margrét Ingólfsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir og Stefán Ólafsson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir: 1. Fundargerð 97. fundar Engar athugasemdir gerðar 2. Fjárhagsáætlun 2008 ? óskir forstöðumanna um stofnbúnað Farið yfir útsend gögn, tillögu að skiptingu fjár til stofnabúnaðarkaupa. Einnig rætt um þann stofnbúnað sem nú er hluti af rekstrarrömmum stofnana. Sigríður óskaði skýringa á því hvers vegna skorið hafi verið svo mikið niður miðað við óskir forstöðumanna. Greint frá því að um sé að ræða þær 5 milljónir sem ákveðnar voru til skiptanna á fjármagni til stofnbúnaðar milli stofnana sveitarfélagsins við gerð fjárhagsáætlunar 2008. Efasemdir komu fram um þá aðferð sem notuð er til útdeilingar og fannst sumum fundarmönnum að skiptingin væri einkennileg. Þær Margrét og Snæfríður sögðust ekki ánægðar með hlut sinna stofnana. Spurt var t.d. hvað Grunnskólinn í Hofgarði eigi að gera við 100.000. kr. þegar tekið er mið af óskum forstöðumanns. Rætt um hvort ekki væri rétt að fjármagn til stofnbúnaðar verði strax ákveðið sem hluti af rekstrarrömmum en ekki sem sérstakur liður í fjárhagsáætlun. 3. Erindisbréf fyrir foreldraráð Greint frá ósk foreldraráðs um að gert verði erindisbréf fyrir ráðið. Samþykkt að byggja erindisbréf fyrir foreldraráð á því erindisbréfi sem sent var út með fundargögnum. Ákveðið að lesa það saman við lögin og taka það fyrir á næsta fundi í nefndinni. 4. Niðurstöður úr rannsókninni Ungt fólk 2007 Í rannsókninni er beint sjónum að (öllum) börnum á landinu á aldrinum 10 ? 13 ára, þ.e. 5. ? 7. bekk grunnskóla. Helstu áherslur eru á upplýsingar um líðan nemenda, samband þeirra við foreldra og vini, viðhorf nemenda til náms og skóla, upplýsingar um íþróttaiðkun ásamt upplýsingum um tómstundir og íþróttastarf. Meðal þess sem fram kemur í rannsókninni sem framkvæmd var á öllu landinu er: Hlutfall þeirra sem telja sig of mjóa er um 11% og of feita er 11 ? 23%, hæst í 7. bekk. Hlutfall þeirra sem átt hafa erfitt með að sofa/sofna sl. 7 daga fyrir könnun er 17 ? 25%. 18% nemenda sem aldrei æfa íþróttir finna oft/stundum fyrir einmanaleika en hlutfall þeirra sem æfa íþróttir er 9%. Hlutfall þeirra sem eru oft með foreldrum sínum eftir skóla eða um helgar er 82 ? 90%. Hlutfall þeirra sem auðveldlega fá ráðleggingar varðandi námið er 90 ? 94%. Hlutf. þeirra sem eru stundum/oft einir heima eftir skóla (ekki með foreldrum) er 42 ? 48%. Hlutfall þeirra sem líður aldrei/næstum aldrei illa heima er 82 ? 88%. Hlutf. þeirra sem oft/stundum eru með vinum sínum eftir skóla/um helgar er 84 ? 87%. Hlutfall þeirra sem finnst námið of erfitt er 8 ? 14%, strákar hærra hlutfall en stelpur. Hlutfall þeirra sem finnst námið of létt er 9 ? 14%, strákar hærra hlutfall en stelpur. Hlutfall þeirra sem segja að þá langi oft til að hætta í skóla er 8 ? 18%, strákar mun hærra hlutfall en stelpur. Hlutf. þeirra sem líður illa í kennslustundum er 5 ? 7%, strákar lítið eitt hærri en stelpur. Hlutfall þeirra sem segjast fá hrós frá kennaranum í skólanum er 62 ? 77%. Hlutfall þeirra sem segjast stunda íþróttir 1 sinni til 3 sinnum í viku er 25 ? 37%. Hlutfall þeirra sem segjast stunda íþróttir 4 sinnum í viku eða oftar er 23 ? 41%. Hlutfall þeirra sem segjast aldrei taka þátt í tómstundastarfi í skólanum sínum er á bilinu 46 ? 55%. Hlutfall þeirra sem segja að þeim líki oft/alltaf við þá starfsmenn sem eru með þeim í íþróttastarfsemi er á bilinu 72 ? 75%. Hlutfall þeirra sem segja að þeim líki oft/alltaf við þá starfsmenn sem eru með þeim í öðru frístundastarfi er á bilinu 60 ? 73%. Skýrslan er aðgengileg á vef menntamálaráðuneytisins. Guðmundur sagði það vera mjög gagnlegt að fá útskrift fyrir okkar nemendur en slíka útskrift sagði hann vera nokkuð dýra. Lagði hann áherslu á að fá þessa útskrift og sagðist vera í samskiptum við skýrsluhöfunda. Var undir þetta tekið. 5. Önnur mál ? Greint frá bréfi menntamálaráðuneytisins þar sem m.a. segir orðrétt: ?Grunnskólum er óheimilt að skipuleggja ferðir í tengslum við fermingafræðslu á skólatíma.? Þá segir einnig í bréfinu: ?Menntamálaráðuneyti lítur svo á að fermingarfræðsla eigi að fara fram utan lögbundins skólatíma nemenda ...? ? Bréf frá menntamálaráðuneytinu þar sem greint er frá því að Friðrik Þór Friðriksson og ráðuneytið hafi gert með sér samning um sýningarrétt á kvikmyndum hans í skólum landsins. ? Rætt um fyrirspurn sem starfsmaður nefndarinnar sendi til menntamálaráðuneytisins þar sem óskað var svara um greiðsluþátttöku nemenda í ýmsum ferðalögum á skólatíma. Því svarað að formlegt svar hafi ekki borist en rætt hafi verið við starfsmann ráðuneytisins og að búast megi við svari á næstunni. ? Sigríður óskaði eftir því að bókuð yrðu vonbrigði hennar með að gjaldskrá lengdrar viðveru hafi ekki verið lækkuð í fjárhagsáætlun 2008 í samræmi við áður fram komnar tillögur skólanefndar. Var undir þetta tekið af öðrum skólanefndarmönnum. ? Rætt um heimsóknir skólanefndar í skóla sveitarfélagsins. Fundi slitið kl. 18:00


