Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skólanefndar 100

100. fundur

Fundur haldinn      í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 23. janúar 2008 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar. 

 Mætt voru:     Guðrún Jónsdóttir formaður, Ingibjörg Ævarr Steinsdóttir, Gunnar Sigurjónsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Pálína Þorsteinsdóttir, Guðlaug Úlfarsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir og Stefán Ólafsson.        

 Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:               

 1. Fundargerð 99. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

 2. Skýrsla um starfsemi leikskólanna

Skýrslan var að mestu unnin á haustdögum 2007 og vinnu við hana lokið í janúar 2008. Miðað er við barna- og starfsmannafjölda í október 2007. Fram kemur m.a. að dvalartími barna í leikskólum á Hornafirði er að meðaltali mun skemmri en sama meðaltal á landinu öllu. 27,5% hornfirskra leikskólabarna eru í skólanum í 4 klst. á dag og 37% eru í 8 klst. eða lengur.  Árið 2006 var hlutfall barna sem voru 8 klst. eða lengur í leikskóla, m.v. allt landið, um 75%. Ekki komu fram einhlít svör við því hvers vegna hornfirsk börn eru skemur en börn almennt á landinu í leikskóla. Spurning hvort svörin er að finna í samfélagsgerðinni, þar á meðal öðrum vinnutíma, einkum kvenna. Einnig gæti stærð samfélagsins haft þar áhrif.

Ekki kemur annað fram en að starfsemi leikskólanna sé öflug og þar fari fram fjölbreytt nám. Skortur á leikskólakennurum setur þó sitt mark á starfsemi skólanna. Rætt var um álag á starfsfólk skólanna vegna þeirra starfsmanna sem eru í burtu vegna náms, veikinda og orlofs. Kom fram að staðan hafi verið með versta móti í skólunum (einnig grunnskólunum) á þessu skólaári hvað varðar forföll starfsmanna og álag sem því fylgir. Var þeirri spurningu varpað til skólanefndar hvað hún hygðist gera í þessari stöðu.   

 3. Niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 4. og 7. bekk og niðurstöður samræmdra prófa í 10. bekk

Skýrslur Námsmatsstofnunar sýna að grunnskólarnir eru almennt um eða eitthvað fyrir neðan meðaltal landsins á árinu 2006.  Upplýst var að árangur var mun betri í 4. bekk haustið 2007 sem gæti verið vísbending um bættan árangur. Sama staða var að hluta til einnig í 7. bekk, betri 2007 en 2006. Staðan í 10. bekk var svipuð árin 2006 og 2007, þ.e. almennt eitthvað undir meðaltali, misjafnt eftir greinum. Var mikið rætt um stöðu skólanna og árangur þeirra og benti Guðlaug (fulltrúi kennara) á að starfsmenn skólanna ræddu þetta mikið sín á milli. Í því sambandi var bent á tíð kennaraskipti, of lágt hlutfall réttindakennara, samfélagsgerðina o. fl. þætti.

 4. PISA 2006 – helstu niðurstöður

Nemendur á Hornafirði eru lítillega undir meðaltali Íslands í könnuninni þótt í sumum greinum muni þar litlu. Greint var frá alþjóðlegri gagnrýni sem fram hefur komið á PISA könnunina  þar sem því er m.a. beinlínis haldið fram að slíkir annmarkar séu á henni að það hefði aldrei átt að birta hana. Sigríður benti á að rík ástæða sé til að skoða þessa þætti, sbr. lið 4 og 5 á dagskránni, og reyna að komast að því hvernig bæta má árangur skólanna.

 5. Bréf skólastjóra Grunnskólans í Hofgarði, dags. 10. janúar 2008

Í bréfi sín fjallar skólastjóri um samskipti við aðra skóla í sveitarfélaginu og við sérfræðiþjónustu skólanna. Telur skólastjóri að þar mætti betur gera, þ.e. bæta þá þjónustu sem Grunnskólinn í Hofgarði fær. Þá benti skólastjóri á að skólinn hafi ekki lengur annan lítinn grunnskóla til að eiga samstarf við og það sé eins og að vegalengdin til Hafnar hafi lengst. Óskaði skólastjóri eftir því að unnið verði skipulag þar sem ákvarðað verði með hvaða hætti þjónusta við Grunnskólann í Hofgarði verði og um leið staða hans í skólasamfélaginu.  

Starfsmaður skólanefndar útskýrði stöðu mála og minnti um leið á þær breytingar sem orðið hafa á sviðinu og í grunnskólanum. Staða sérkennslufulltrúa hafi verið lögð af sem óhjákvæmilega hafi breytt ýmsu í þjónustunni við skóla sveitarfélagsins. Þórgunnur benti á að stjórnendur Grunnskóla Hornafjarðar hafi verið mjög uppteknir við hinn nýsameinaða skóla og því lítill tími gefist til samstarfs við aðra skóla í sveitarfélaginu.  

 6. Svarbréf menntamálaráðuneytis, dags. 21. desember 2007, svar við fyrirspurn skólaskrifstofu, dags. 18. október 2007

Fram kom sú skoðun starfsmanns nefndarinnar að ekkert væri að græða á svari menntamálaráðuneytisins. Hvorki svaraði það þeim spurningum sem til þess var beint né tæki á nokkurn hátt af vafa um hvaða ferðir flokkuðust undir vettvangsnám og hvaða ferðir ekki. Sigríður lagði áherslu á að nú þurfi skólarnir að skilgreina hvaða ferðir séu vettvangsferðir og hvaða ferðir ekki. Taldi hún til dæmis að skíðaferð, skólalokaferð o.fl. sambærilegar ferðir flokkuðust hugsanlega ekki undir vettvangsferðir. Skapaðist um þetta veruleg umræða og ljóst að hugtakið vettvangsferð er erfitt að skilgreina. Kallaði skólastjóri grunnskólans eftir svörum um hvaða ferðir ætti að flokka undir vettvangsferðir en því var ekki svarað á fundinum. Sagði hún mikilvægt fyrir skólann að það væri á hreinu. Voru menn sammála að þessi mál þurfi að komast á hreint og stefnt að því að vinna að því sameiginlega. Munu starfsmenn gera tillögu að slíkri skilgreiningu.

 7. Önnur mál

Guðrún gerði að tillögu sinni að skólanefnd færi í heimsóknir í leik- og grunnskóla sveitarfélagsins. Gerði hún tillögu um að nýta tvo næstu þriðjudaga til heimsóknar í skólana og var það samþykkt. 

 

Fundi slitið kl. 19:00

 

 

 

 

 

 

 

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica