Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skólanefndar 101

101. fundur

  

Fundur haldinn      í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 27. febrúar 2008 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar. 

 Mætt voru:     Gunnar Sigurjónsson varaformaður, Gísli Vilhjálmsson, Torfi Friðfinnsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Sædís Guðmundsdóttir, Sigríður Lárusdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Stefán Ólafsson.        

 Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:               

 1. Fundargerð 100. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

 2. Heimsókn skólanefndar í leik-, grunn- og tónskóla

Dagana 31. janúar og 5. febrúar sl. heimsótti skólanefnd ásamt starfsmanni nefndarinnar alla skóla sveitarfélagsins. Nefndarmenn skoðuðu húsnæði og ræddu við starfsmenn um skólastarfið og ýmsa þætti sem snúa að skólastarfinu. Torfi sagðist ánægður með þessar heimsóknir í skólana og taldi þær gagnlegar. Var undir það tekið af öðrum nefndar-mönnum. Starfsmenn skólanna voru á sama máli og skólanefndarmenn og lögðu áherslu á mikilvægi þessara heimsókna. Fram kom það sjónarmið að þær mættu jafnvel vera einu sinni á ári.

 3. Bréf leikskólastjóra

Í bréfinu er farið fram á að einum starfsdegi, þ.e. þar sem börnin mæta ekki í skólann, verði bætt við þá fjóra sem fyrir eru, þrír á haustönn og einn á vorönn, og kæmi viðbótardagurinn á vorönn. Meginrökin fyrir þessari ósk eru þau að ekki gefist nægur tími til að undirbúa leikskólastarfið. Starfsdagarnir eru, auk undirbúnings fyrir skólastarfið, nýttir til sí- og endurmenntunar, heimsóknir í aðra leikskóla, foreldraviðtöl, endurmat á skólastarfi og tiltekt í skólunum. Margrét sagði slíka starfsdaga vera 2 – 5, misjafnt eftir skólum. Spurt var hvernig foreldrar tækju þessum dögum. Ekki kom fram ákv. svar við því en bent á að reynt er að láta þá falla að sambærilegum dögum í grunnskólunum.

Skólanefnd samþykkir fyrir sitt leyti þessa viðbót um einn starfsdag en leggur jafnframt áherslu á að starfsdagar leik- og  grunnskóla sveitarfélagsins falli saman eins og kostur er.

 4. Greinargerð starfshóps um félagslíf grunnskólanema á Hornafirði

(Sædís mætti á fundinn undir þessum lið.)

Síðastliðið haust var skipaður starfshópur til að gera úttekt og koma með tillögur að fyrirkomulagi félagslífs grunnskólanema á Hornafirði. Í samantekt starfshópsins kemur eftirfarandi m.a fram:

  • Félagsmiðstöðvar eru einn liður í því að gefa ungu fólki kost á að stunda áhugamál í jákvæðu og uppbyggilegu umhverfi, hitta jafnaldra sína og sinna áhugamálum sem byggja á eigin frumkvæði.
  • Aðsókn sýnir að nauðsynlegt er stokka spilin upp. Leggja meiri áherslu á fræðslu-kvöld, viðburði eins og t.d. sundstuð, innilegu og efla þátt klúbba, s.s. smíði, listir og skák, allt  eftir  áhuga nemenda.
  • Nauðsynlegt er að starfsmaður með menntun á sviði tómstundafræða verði ráðinn í fullt starf.  Mikilvægt er að í félagsmiðstöðinni séu starfsmenn af báðum kynjum.
  • Opnunartíma í félagsmiðstöðinni fyrir nemendur í 5. – 7. bekk þarf að lengja þannig að þeir geti sótt Þrykkjuna strax að loknum skóla. 
  • Húsnæði Þrykkjunnar þarf að taka til endurskoðunar með það að markmiði að það henti betur þeirri starfsemi sem þar fer fram. Skoða mætti kosti þess að samnýta að einhverju leyti húsnæði félagsmiðstöðvar og grunnskólans.
  • Bæta þarf tækjakost félagsmiðstöðvar.
  • Sérstök áhersla skal lögð á forvarnir gegn vímu- og fíkniefnum, ofbeldi, einelti, fordómum og félagslegri einangrun.
  • Starfshópurinn leggur áherslu á að unnin verði starfsskrá félagsmiðstöðvar og einnig verði siðareglur um starfsemina til staðar í félagsmiðstöðinni.
  • Nauðsynlegt er að rekstur félagslífs grunnskólans og félagslífs Þrykkjunnar sé aðskilinn. Skýr mörk þurfa að vera á milli félagsmiðstöðvar og skóla bæði stjórnunar- og skipulagslega. Í öllu félagsstarfi skólans gilda reglur skólans og í félagsmiðstöðinni gilda starfsreglur félagsmiðstöðvarinnar. Samráð og samvinna á að vera á milli þessara aðila en jafnframt þarf að vera ljóst að þetta eru tvær aðskildar stofnanir.
  • Starfshópurinn leggur áherslu á samvinnu þeirra sem vinna að félagsstörfum og íþróttaiðkun barna á grunnskólaaldri.
  • Starfshópurinn hvetur til að haldið verði ungmennaþing.

Töluverð umræða skapaðist um greinargerðina og var almenn sátt fundarmanna með þá vinnu og þær tillögur sem þar koma fram. Minnt var á að tímar væru breyttir, við því þurfi að bregðast og endurskipuleggja starfið. Sigríður ræddi vinnu nefndar sem gera á úttekt á nýtingu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins, hennar störf muni einnig beinast að þörfum félagsmiðstöðvar sem annarra. Guðmundur lagði áherslu á að innra starfið skipti mestu máli, það þurfi að vera í góðu lagi. Gísli sagðist almennt sammála því sem fram kemur í skýrslunni. Þá gerði hann að umtalsefni núverandi húsnæði félagsmiðstöðvar, einkum innanstokksmunum. Sagði hann þessum aldurshópi ekki sýnd mikil virðing með aðstöðunni. Þá ræddi hann þau miklu skil sem verða við 18 ára aldurinn og um leið á ýmsum þáttum félagslífsins. Sigríður taldi Sindrabæ ekki hentugan fyrir starfsemi félagsmiðstöðvar. Guðmundur sagði að framhaldsskólinn eigi að bera ábyrgð á félagslífi nemenda skólans. Gerð var athugasemd við mannahald eins og það er núna í félagsmiðstöðunni einkum það að nemendur framhaldsskólans séu við starfsnám án þess að kennari fylgdi.

Skólanefnd lýsir yfir ánægju með skýrsluna og hvetur til að eftir henni verði unnið. Einnig hvetur nefndin til þess að haldið verði ungmennaþing.

 5. Sameiginleg framtíðarsýn fyrir grunnskólastarfið 2007 - 2020

Framtíðarsýnin er afrakstur af sameiginlegri vinnu Félags grunnskólakennara, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands. Hópurinn sem stóð að þessari vinnu skilaði af sér í nóvember 2007. Kynning á framtíðarsýninni hefur að mestu farið fram í febrúar 2008.

Stefán sagði að þegar sameiginleg framtíðarsýn þessara aðila er borin saman við skólastefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar komi í ljós að mikill samhljómur er með þeim þó vissulega komi einnig fram áherslumunur. Tók Guðmundur undir þessi orð. Sagði Guðmundur þetta vera góða skýrslu og hann vera ánægður með hana.    

 6. Prófdagar samræmdra prófa 2008

Prófdagar samræmdra prófa eru með eftirfarandi hætti:

Íslenska í 4. og 7. bekk fimmtudagur 16. október 2008 kl. 9:30 – 12:00

Stærðfræði í 4. og 7. bekk        föstudagur 17. október 2008                kl. 9:30 – 12:00

Gísli sagðist vera andsnúinn samræmdum prófum.

 7. Önnur mál

Spurt var um hver framtíð Hrollaugsstaða.  Í svari var vísað til nefndar sem er að gera úttekt á fasteignum sveitarfélagsins.

Fram kom sú hugmynd frá Gísla að á Hrollaugsstöðum fari fram íslenskukennsla og kennsla um Ísland fyrir nýbúa á öllu landinu.  Þetta nám yrði auglýst á landsvísu. Sveitarfélagið tæki að sér að reka þessa starfsemi.

 

Fundi slitið kl. 17:47

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica