Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 102
102. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 26. mars 2008 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Gísli Vilhjálmsson, Torfi Friðfinnsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Sædís Guðmundsdóttir, Sigríður Lárusdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 101. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar 2008 - 2009
Guðmundur Ingi fór yfir dagatalið og svaraði spurningum.
Skólanefnd samþykkir samhljóða fram lagt dagatal Grunnskóla Hornafjarðar fyrir skólaárið 2008 – 2009.
3. Tillaga til bæjarráðs um breytingar á æskulýðs- og tómstundamálum
Farið yfir meðfylgjandi greinargerð. Þar kemur meðal annars fram tillaga um að tómstundafulltrúi, yfirmaður félagsmiðstöðvar grunnskólanema sem vinnur jafnframt með ungmennum, falli undir Menningarmiðstöð og forstöðumaður íþróttamannvirkja falli undir fræðslu- og félagssvið. Rætt var undir þessum lið um tengsl við framhaldsskólann og félagslíf nemenda hans. Fannst sumum skorta á í framkomnum tillögum slík tengsl.
Um þá hugmynd að tómstundafulltrúi falli undir Menningarmiðstöð og þá um leið menningarmálanefnd voru skiptar skoðanir meðal fundarmanna. Ýmsir sögðu að það passi ekki vel saman að tengja Menningarmiðstöð við það starf sem fram fer í félagsmiðstöðinni. Aðrir voru á annarri skoðun og töldu þessa leið vel færa. Fjórir skólanefndarmenn af fimm töldu að ekki ætti að breyta frá núverandi skipulagi og starf tómstundafulltrúa falli undir æskulýðs- og tómstundaráð.
Þá kom fram sú skoðun að starfslýsing forstöðumanns íþróttamannvirkja þyrfti að vera ítarlegri og nákvæmari. Gísli vildi að framangreind starfslýsing verði endurunnin.
4. Bréf leikskólastjóra Lönguhóla vegna fyrirhugaðra starfsdaga í september
Margrét útskýrði fram komna ósk skólans um að taka tvo samliggjandi starfsdaga 11. og 12. september næstkomandi en fyrirhugað er að starfsfólk skólans fari utan, sennilega til einhvers Norðurlandanna, til að kynna sér útiskólakennslu.
Skólanefnd samþykkir með fjórum greiddum atkvæðum að starfsdagarnir verði teknir samkvæmt ósk leikskólans Lönguhóla, einn sat hjá.
5. Umhverfi og heilsa barna í norrænum leikskólum
Í meðfylgjandi bæklingi segir m.a. í inngangsorðum: „Tryggja ber núlifandi og komandi kynslóðum heilbrigð lífsskilyrði. Norræna ráðherranefndin hefur sett sér það markmið að Norðurlöndin verði fyrirmyndarstaður fyrir börn.”
6. Sumarfrí í leikskólum, sbr. bókun á 410. fundi bæjarráðs
Á 89. fundi heilbrigðis og öldrunarráðs er eftirfarandi fært til bókar: „Starfsfólk HSSA bendir á að báðir leikskólar sveitarfélagsins fara í sumarfrí á sama tíma og veldur þetta oft miklum vandræðum í starfsemi stofnunarinnar. Óska starfsmenn HSSA eftir því að þessi umræða verði tekin upp í bæjarráði.” Í fundargerð bæjarráðs var eftirfarandi bókað um sama mál: „Björn Ingi spurði um ........ sumarfrí leikskóla sbr. umræðu á HÖR fundi.”
„Mikil umræða skapaðist um sumarfrí á leikskólum. Bæjarráð telur mikilvægt að skólanefnd fjalli um málið og leiti eftir sjónarmiðum frá HSSA um málið.”
Í skólastefnu sveitarfélagsins stendur m.a.: „Leikskólar sveitarfélagsins verði lokaðir minnst fjórar vikur samfellt að sumri.”(Bls. 15) Ekki kemur fram í skólastefnunni að skólarnir skuli báðir lokaðir á sama tíma að sumri. Margrét greindi frá könnun sem framkvæmd var á meðal foreldra leikskólabarna og þá kom fram að yfirgnæfandi meirihluti foreldra taldi júlí – ágúst sem lokunartíma besta kostinn. Sigríður Lárusdóttir greindi frá skipulagi sumarleyfa hjá HSSA. Skólanefnd telur ekki verða hægt að breyta neinu um sumarlokun leikskóla þetta árið enda almennu skipulagi sumarleyfa á þessu ári víðast hvar lokið. Jafnframt felur skólanefnd starfsmanni nefndarinnar að leita eftir sjónarmiðum frá HSSA í samræmi við bókun bæjarráðs.
7. Önnur mál
- Aukinn kostnaður vegna ákvörðunar Tryggingastofnunar ríkisins um að lækka greiðslur vegna sérstakrar talþjálfunar barna. Stefán fór yfir þær breytingar sem verða á greiðslum Tryggingastofnunar vegna sérstakrar talþjálfunar barna sem og greiðslur sveitarfélagsins vegna þeirrar talþjálfunar. Þá benti hann á að þessar greiðslur TR hafi ekkert með almenna greiningarvinnu talmeinafræðings fyrir skóla sveitarfélagsins að gera eða greiðslur fyrir þá vinnu. Sigríður kom með tillögu um að reynt verði að fá lækkun á tímagjaldi talmeinafræðings vegna talþjálfunar og var hún samþykkt. Samþykkt með 3 atkv. gegn 2 að sveitarfélagið greiði þann mismun sem skapast við þessa ákvörðun Tryggingastofnunar. Hafnað var tillögu um að sveitarfélagið styrki foreldra um kr. 1.500.- fyrir hvern 40 mínútna talþjálfunartíma sem barn þarf að sækja.
- Greint frá því að starfsmaður Námsmatsstofnunar verði hér 7. apríl næstkomandi kl. 14:30 með fund í Nýheimum þar sem farið verður yfir þá þætti PISA skýrslunnar sem snerta ungmenni á Hornafirði.
Fundi slitið kl. 18:10


