Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Erindisbréf Skólanefndar

Stjórnskipuleg staða

Skólanefnd Hornafjarðar starfar á fræðslu- og félagssviði og heyrir beint undir Bæjarstjórn Hornafjarðar. Starfsmaður nefndarinnar er framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs.

Skipan, seturéttur á fundum og áheyrnaraðild

Í skólanefnd eiga sæti fimm fulltrúar kosnir af bæjarstjórn að afloknum sveitarstjórnarkosningum skv. ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og laga um grunnskóla. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann og hverjum aðalmanni er jafn­framt kosinn varamaður. Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar haft samstarf um kosn­ingu skólanefndar, skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna vara­mann hans, nema öðruvísi hafi verið ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Kjörtímabil skólanefndar er hið sama og bæjarstjórnar. Auk kjörinna fulltrúa eiga bæjarstjóri og framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti. Sama rétt eiga fulltrúar eftirtalinna hópa: einn fulltrúi skólastjóra við grunnskóla Hornafjarðar, tveir fulltrúar kennara við grunnskóla Hornafjarðar og einn fulltrúi foreldra barna í grunnskólum Hornafjarðar. Þá er heimilt að kalla til á fundi skólanefndar sérhvern þann er tengist málum sem fjallað er um hverju sinni. Starfsmönnum stofnana bæjarins er skylt að sitja fundi skólanefndar sé þess óskað.

Hlutverk og verksvið

Meginhlutverk skólanefndar er að móta stefnu í skólamálum sveitarfélagsins, og sjá um að öll börn í sveitarfélaginu njóti lögboðinnar fræðslu. Meðal verkefna nefndarinnar er:

  • að vera bæjarstjórn til ráðgjafar og veita umsögn í skólamálum,
  • að fylgjast með framkvæmd laga um grunnskóla og leikskóla sem og annarra laga og reglugerða   er snerta starfssvið nefndarinnar,
  • gera tillögur að fjárhagsáætlun til bæjarstjórnar um útgjaldaliði skólamála,
  • að fara með málefni grunnskóla, leikskóla og tónskóla eftir því sem lög og reglugerðir ákveða,
  • að fjalla um og undirbúa gerð skólamannvirkja og nýtingu þeirra í samvinnu við byggingar- og skipulagsnefnd,
  • að fylgjast með og stuðla að því að skólarnir eigi aðgang að sérfræðiþjónustu,
  • að veita bæjarstjóra umsögn um ráðningu skólastjóra,
  • að fjalla um önnur þau mál sem bæjarstjórn felur nefndinni.

Starfshættir

Um starfshætti undirnefnda Bæjarstjórnar Hornafjarðar er fjallað í IV. kafla í samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar og skal ákvæðum kaflans fylgt eftir því sem við á.

Skólanefnd kemur saman á fastákveðnum fundartíma einu sinni í mánuði. Skal gerð samþykkt um þennan fundartíma á fyrsta fundi að fenginni tillögu bæjarstjóra. Boðað skal til aukafunda að ákvörðun formanns eða ef a.m.k. tveir nefndarmanna óska þess. Heimilt er að fella niður fundi að sumarlagi og á öðrum tímum að mati formanns. Nefndin getur auglýst einstaka fundi sína opna en verður annars að samþykkja viðveru hvers þess sem ekki á seturétt á fundinum.

Þá getur nefndin staðið fyrir kynningarfundum vegna starfa sinna eða þeirra verkefna sem til umfjöllunar eru og skulu slíkir fundir öllum opnir.

Nefndarformaður stýrir fundum nefndarinnar.

Framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs sér um að taka á móti erindum og málum sem leggja á fyrir nefndina. Hann útbýr í samráði við formann skriflegt eða rafrænt fundarboð þar sem tilgreindur er fundarstaður og fundartími og dagskrá í tölusettum liðum. Fundarboð skal sent öllum aðalmönnum (varamönnum í forföllum aðalmanna) og öðrum sem seturétt eiga á fundum skólanefndar. Boðun funda skal fara fram með tryggilegum hætti svo öruggt sé að fundarboð hafi borist öllum í síðasta lagi sólarhring fyrir fund. Fundargerð seinasta fundar skal send með fundarboði.

Starfsmaður færir fundargerð hvers fundar og er ábyrgur fyrir að hún sé lesin upp í lok fundar og staðfest af viðstöddum fundarmönnum. Fundargerð skal greina númer fundar, skv. talningu ákveðinni af bæjarstjórn, hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji hann. Skrá skal mál sem tekin eru fyrir og þess sérstaklega getið ef mál er tekið fyrir utan dagskrár fundarins. Lýsa skal erindum með meginefni þeirra, aðilum og dagsetningum bréfa.

Skólanefnd afgreiðir mál með samþykktum, ályktunum og ákvörðunum. Sé mál ekki afgreitt samhljóða, skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst.

Fundargerð má hvort heldur sem er færa í gerðarbók eða beint í tölvu, en sérstaklega skal gætt ákvæða samþykktar um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar. Í lok fundar skal fundarritari lesa fundargerðina upp og allir viðstaddir undirrita hana í gerðarbók og á útprentun tölvufærðrar fundargerðar ef því er til að skipta. Framkvæmdastjóri  stjórnsýslusviðs sér um að undirrituð fundargerð sé tekin á dagskrá næsta fundar Bæjarráðs Hornafjarðar.

Ályktanir til bæjarstjórnar og bæjarráðs skulu ætíð sendar bæjarstjóra í sérstöku erindi sem starfsmaður nefndarinnar útbýr.

Skólanefndarmenn skulu fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín samkvæmt nánari ákvörðun bæjarstjórnar.

Eftirfylgni

Skólanefnd og framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs hafa með höndum framkvæmd þeirrar stefnu sem mótuð hefur verið á hverjum tíma varðandi fræðslumál sveitarfélagsins. Formaður og aðrir fulltrúar í skólanefnd skulu snúa sér til bæjarstjóra til að fylgja eftir þeim ákvörðunum og samþykktum sem ekki eru alfarið á verksviði skólanefndar að framfylgja.

Réttindi og skyldur skólanefndarmanna

Um réttindi og skyldur skólanefndarmanna gilda ákvæði sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar eftir atvikum.

Skólanefndarmanni er bæði rétt og skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Nú forfallast aðalmaður um stundarsakir og skal hann þá boða tilnefndan varamann sinn og láta formann eða forstöðumann sýslusafns vita um forföllin með góðum fyrirvara. Flytjist aðalmaður burt úr sveitarfélaginu, falli hann frá eða forfallist varanlega á annan hátt, tekur tilnefndur varamaður sæti hans þar til aðalmaður er kosinn að nýju og eftir atvikum annar varamaður.

Hver nefndarmaður á rétt á að koma máli á dagskrá fundar, enda skili hann efni þess til starfsmanns nefndarinnar a.m.k. fimm sólarhringum fyrir fund. Nefndarmenn skulu hafa hag sveitarfélagsins að leiðarljósi við störf sín, en eru ekki bundnir af öðru en sannfæringu sinni og lögum í atkvæðagreiðslu um málefni á vettvangi skólanefndar. Þá skulu þeir virða í hvívetna samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Nefndarmenn, starfsmaður nefndarinnar og aðrir sem fundi skólanefndar sitja eru bundnir þagnarskyldu um það  sem þeir fá vitneskju um á fundum eða í öðru starfi sínu fyrir skólanefnd og ætla má að leynt eigi að fara samkvæmt eðli máls, lögum eða samþykkt 2/3 nefndarmanna, hvort sem þau varða einka- eða almanna­hagsmuni.

Nefndarmaður skal víkja af fundi við umræður og atkvæðagreiðslu mála sem varða hann sjálfan, skyldmenni hans eða nánustu venslamenn svo mjög að ætla má að það móti viljaafstöðu hans að einhverju leyti. Honum er þó heimilt að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni áður en hann víkur af fundi. Nefndarmanni er skylt að vekja athygli á því ef hæfi hans til meðferðar máls orkar tvímælis.

Lög og reglugerðir

Í störfum sínum skal skólanefnd taka mið af þeim lögum og reglugerðum sem snerta starfssvið hennar, sérstaklega þó lögum um grunnskóla nr. 66/1995, lögum um leikskóla nr. 78/1994 og reglugerð um leikskóla. Þá skal nefndin fylgja samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar eins og hún er hverju sinni.

Um þau atriði sem ekki er kveðið á um í erindisbréfi þessu skal skólanefnd taka mið af ákvæðum í erindisbréfi fyrir skólanefndir sem gefið var út af Sambandi íslenskra sveitarfélaga 15. maí 1996, og hér fylgir með. Síðarnefnda erindisbréfið gengur þó aldrei framar erindisbréfi þessu eða samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar.

 


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica