Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 106
Fundur 106
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 27. ágúst 2008 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Stephen Robert Johnson, Sigríður Kristinsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Sædís Guðmundsdóttir, Þorvaldur J. Viktorsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 105. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skólaakstur 2008 – 2009
Farið yfir útsend gögn sem sýna skipulag vetrarins. Engar athugasemdir gerðar.
3. Evrópskur tungumáladagur 26. september 2008
Starfsmenn skólans greindu frá hvað skólinn gerir á þessum degi sem og öðrum svipuðum dögum.
4. Þróun nemendafjölda við Grunnskóla Hornafjarðar – breytt skipulag?
Farið yfir útsend gögn sem sýna m.a. verulega fækkun grunnskólanema í sveitarfélaginu sl. 10 ár. Einnig var farið yfir fundargerð frá fundi sem haldinn var um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar þann 18. ágúst 2008. Eftir ítarlegar umræður var lögð fram eftirfarandi bókun og hún samþykkt samhljóða:
Frá árinu 1999 til 2008 hefur nemendum á svæði Grunnskóla Hornafjarðar fækkað úr 435 í 327. Með hliðsjón af þessari miklu fækkun leggur skólanefnd til að hafin verði athugun á því að kennsla í 1. – 3. bekk skólans færist öll í skólahúsnæði á Höfn. Lagt er til að settur verði á fót sex manna starfshópur sem skipaður verði þremur fulltrúum úr skólanefnd, þ.e. einum frá hverju framboði, einum fulltrúa foreldra, einum fulltrúa starfsmanna skólans og einum skólastjóra.
5. Reglur um sí- og endurmenntun starfsmanna sveitarfélagsins
Farið yfir drög að reglum. Starfsmaður tók niður þær ábendingar sem fram komu. Það sjónarmið kom fram að það sé bæði jákvætt og mikilvægt að setja reglur sem þessar.
6. Önnur mál
- Erindi stýrihóps sem móta á fjölskyldustefnu. Ábendingar skráðar.
- Erindi frá leikskólanum Krakkakoti ósk um breyttar dagsetningar á skipulagsdögum skólans vegna ráðstefnu heilsuleikskóla. Skólanefnd samþykkir að verða við ósk leikskólastjóra Krakkakots um breytingu á skipulagsdögum frá skóladagatali.
- Sigríður spurði um hvert stúlkur í Öræfum hafi farið í 9. bekk. Því svarað til að önnur sé í Grunnskóla Hornafjarðar og hin á Klaustri. Einnig rætt um heimavist á Höfn.
- Spurt um hvernig gengið hafi að manna skólana. Fullmannað er við skólana.
Fundi slitið kl. 18:10


