Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skólanefndar 109

109. fundur

Fundur haldinn      í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 26. nóvember 2008 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.  

 Mætt voru:     Guðrún Jónsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Sigríður Kristinsdóttir, Anna María Ríkharðsdóttir, Haukur Þorvaldsson, Þorvaldur J. Viktorsson, Sædís Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.         

 Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

           

1.      Fundargerð 108. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

 2.      Reglur um íþrótta- og tómstundakort, framhald frá síðasta fundi

Farið yfir 2. drög að reglugerð, dags. 30. okt. 2008. Anna María lagði til að síðasti liðurinn í  kaflanum „Reglur um notkun styrkja” verði felldur út: „Þegar foreldri eða forráðamaður  hefur ráðstafað styrk til félags á grundvelli íþrótta- og tómstundakorts er ekki hægt að endurgreiða eða bakfæra greiðslur.” Var þetta samþykkt af nefndinni. Einnig samþykkt að fella út úr fyrsta kafla reglnanna allt frá „og skal greiðslu tvískipt  ..... 31. desember.” Einnig var gerð athugasemd við fyrstu grein í „Sérstök samstarfsverkefni” Samþykkt að fella þann kafla út. Drög að reglum um íþrótta- og tómstundakort samþykkt með áorðnum breytingum.

(Haukur vék af fundi eftir þennan dagskrárlið.)

 3.      Fundargerðir starfshóps – breytingar á Grunnskóla Hornafjarðar

Farið yfir fundargerðir nr. 5 - 9.

 4.      Stjórnunarfyrirkomulag í Grunnskóla Hornafjarða

Guðrún lýsti eftir hvort einhver teldi sig vanhæfan til að sitja fundinn undir þessum lið.

Þorvaldur bað um orðið og sagðist ekki mundu sitja fundinn undir þessum lið. Hann vildi þó hvetja nefndina til að vanda vel til verka, ræða við fólk bæði stjórnendur og starfsfólk og vék af fundi eftir þessi orð sín.

Guðrún dreifði eftirfarandi bókun:

Við Grunnskóla Hornafjarðar starfar ein skólastjórn í dag skv. ákvörðun bæjarstjórnar á fundi hennar 3. janúar 2007. Ákveðið var að skólastjórar Nesja, - Hafnar – og Heppuskóla mynduðu skólastjórnina. Ákvörðunin byggði á vinnu stýrihóps um skólastefnu. Það er mat skólanefndar að sameining skólanna þriggja hafi í öllum meginatriðum gengið vel. Ástæða þess að vel hefur tekist til, er m.a. sú að einn skólastjóri er staðsettur á hverri starfsstöð Grunnskóla Hornafjarðar með skýrt umboð til að stýra daglegum rekstri.

Vegna fyrirhugaðs flutnings alls skólahalds Grunnskóla Hornafjarðar á Höfn skólaárið 2009 – 2010 leggur skólanefnd til að áfram verði unnið eftir því skipulagi sem ákveðið var 3. janúar 2007, þ.e. að einn skólastjóri verði starfandi við hvora starfsstöð. Auk þess leggur skólanefnd til að skólastjórninni verði veitt heimild fyrir einni stöðu deildarstjóra við skólann.

Ef þessar tillögur ganga eftir er ljóst að stöðugildum stjórnenda við Grunnskóla Hornafjarðar fækkar um tvo.

Skólanefnd leggur áherslu á að samið verði við skólastjórnina um breytingarnar en ef sú leið gengur ekki gæti reynst nauðsynlegt að grípa til annarra ráðstafana.

Sigríður sagði þetta vera algjört klúður hjá meirihlutanum miðað við fyrri samþykktir hans þegar núverandi kerfi var komið á með Grunnskóla Hornafjarðar. Sagðist ekki skilja að það þyrfti að breyta stjórn skólans þó að starfsstöðvum fækki með flutningi úr Nesjum. Sædís taldi starfsmenn almennt vera sátta við að vera með þrjá skólastjóra eins og þeir starfa í dag.

Bókun Guðrúnar borin undir atkvæði og hún samþykkt með þremur greiddum atkvæðum, einn sat hjá.

Sigríður sagði að ef menn telja að fækka megi skólastjórum með breytingum á skólahaldi verði fækkað í einn skólastjóra með einum aðstoðarskólastjóra. Einnig megi fækka deildarstjórum um einn þannig að áfram starfi deildarstjóri sérkennslu.

 5.      Önnur mál                      

Sigríður gerði tillögu um að á útmánuðum verði kynntir möguleikar í fjarnámi í ýmsum faggreinum í samráði við Þekkingarnet Austurlands. Þannig verði reynt að laða okkar fólk í nám eins og Sigríður sagði. Einnig vildi hún að Afl starfsgreinafélag verði með í þessari kynningu. Var undir þetta tekið af nefndarmönnum.

 

Fundi slitið kl. 18:20

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica