Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 115
115. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 27. maí 2009 kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Þorvaldur J. Viktorsson, Styrgerður Jóhannsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Jóhann Moravek, Hera Guðmundsdóttir, Steinarr Bjarni Guðmundsson, Guðrún Ingólfsdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Heimsókn í Grunnskóla Hornafjarðar
Áður en formlegur fundur hófst fóru skólanefndarmenn og skoðuðu þær breytingar sem eiga sér stað á skólahúsnæðinu og ræddu við stjóra.
2. Fundargerð 114. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
3. Tillögur að skóladagatali Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu 2009 - 2010
Lögð fram tillaga að skóladagatali Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Skólanefnd samþykkir fram lagt skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar. (Jóhann vék af fundi).
4. Tillögur að skóladagatali leikskólanna 2009 - 2010
Lögð fram tillaga að skóladagatali leikskólanna. Skólanefnd samþykkir fram lagt skóladagatal leikskólanna. Tekið fyrir bréf leikskólastjóranna um að stytta skóladaginn á milli hátíða í desember og loka leikskólunum kl. 14:00. Fram kom að foreldraráð hefur gert óformlega könnun um afstöðu til styttingar skóladags á milli hátíða. Af þeim sem hafa svarað þeirri könnun er meirihluti foreldra fylgjandi því að stytta megi skóladaginn á þessum tíma, en aðrir leggjast gegn slíkri styttingu. Torfi benti á að foreldrar hafi greitt fyrir þessa þjónustu og því vafasamt að fara þessa leið. Sigríður sagðist alfarið vera á móti þessari hugmynd leikskólastjóranna. Skólinn þyrfti að bregðast við með breyttu skipulagi þessa daga. Anna María tók undir þessi orð Torfa og Sigríðar. Elín sagðist taka undir að þetta geti verið hæpið og taldi þetta geta verið erfitt fyrir marga foreldra enda misjafnar aðstæður hjá þeim. Skólanefnd samþykkir ekki hugmyndir um styttingu skóladags á milli hátíða í desember. Margrét tók fram að þetta væri ekkert hjartans mál fyrir leikskólastjórana en ákvörðun hafi verið tekin um að kanna hug skólanefndar til málsins. (Hera og Guðrún viku af fundi).
5. Skólaakstur og tómstundir barna í dreifbýli
Farið yfir útreikninga á kostnaði sem fylgdi slíkum akstri. Einnig rætt um skólatíma og akstur að morgni og síðdegis með börn úr dreifbýli. Elín sagðist vilja byrja á því að bjóða upp á eina ferð í viku í fyrstu og meta hvernig til hefur tekist. Sigríður sagðist taka undir að þessi aukaakstur verði settur á en velti fyrir sér hvort þyrfti ekki að leggja upp með tvær ferðir í viku. Samþykkt með fjórum atkvæðum að byrjað verði með eina ferð í viku. Sigríður sagðist vera sammála því að bjóða upp á þennan akstur vegna tómstundastarfs en taldi betra að hafa tvær ferðir í viku. Starfsmanni nefndarinnar falið að vinna áfram að málinu.
6. Tillögur skólastjórnar um ávaxtabita í grunnskólanum
Stefán greindi frá því að miðað við áætlun skólastjórnar um kostnað við hvern skammt kostaði þessi ávaxtabiti samtals ríflega 2,7 milljónir á ári. Þorvaldur taldi að þetta muni hafa góða áhrif á skólabraginn. Sagði hann eðlilegt að skólanefndin skoðaði málið betur og afgreiddi það ekki á þessum fundi. Steinarr sagði það vera sjálfsagt mál að koma þessu á. Samþykkt að taka málið upp á næsta fundi.
7. Niðurstöður úttekta á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla vorið 2009.
Vorið 2009 gerði menntamálaráðuneytið úttekt á sjálfsmatsaðferðum í 30 grunnskólum. 47% skólanna eru með ófullnægjandi sjálfsmatsaðferðir samkvæmt skýrslu ráðuneytisins og falla báðir grunnskólar sveitarfélagsins í þann flokk. Þorvaldur benti á að sjálfsmat skólans nú væri unnið í samræmi við þær kenningar sem síðustu úttektaraðilar hefðu lagt til en þær hafi ekki verið í samræmi við það sem núverandi úttektaraðilar fari fram á. Þá benti hann á mikinn fjölda kannana sem gerðar væru í skólanum. Sigríður lagði áherslu á að skólarnir setji sér markmið sem séu öllum kunn. Skólanefnd leggur til að skólarnir endurmeti sínar starfsaðferðir við sjálfsmat og felur bæjarstjóra og framkvæmdastjóra sviðsins að svara þeim fyrirspurnum sem fram koma í bréfi ráðuneytisins, dags. 12. maí.
8. Fjölskyldustefna sveitarfélagsins
Farið yfir drög að fjölskyldustefnu og starfsmanni falið að koma ábendingum á framfæri við stýrihóp fjölskyldustefnu.
9. Starfsmannamál í skólum sveitarfélagsins
Greint frá stöðu starfsmannamála við leik-, grunn- og tónlistarskóla. Fram kom að við Tónskóla A-Skaft vantar einn kennara og ekkert hefur verið spurt um auglýsta stöðu. Það er langt komið með að ráða í allar stöður í Grunnskóla Hornafjarðar. Í leikskólum er staðan góð. Fullmannað er við Grunnskólann í Hofgarði.
10. Önnur mál
· Samkvæmt upplýsingum frá leikskólastjórum eru engir á biðlista eftir að komast að strax í leikskóla en komnar eru 18 umsóknir og fyrirspurnir um leikskólapláss fyrir næsta skólaár.
· Elín greindi frá heimsókn tveggja skólanefndarmanna og starfsmanns nefndarinnar í Lönguhóla. Þar var m.a. rætt um þær breytingar og lagfæringar sem þar þarf að fara í. Skólanefnd leggur til að að hið fyrsta verði hafist handa við undirbúning nauðsynlegra breytinga á Lönguhólum og bættrar starfsmannaaðstöðu. Jafnframt vísar nefndin því til starfsmanna skólans að þeir komi með sína framtíðarsýn á endurbætur í skólanum.
· Þorvaldur gerði að umtalsefni tannheilsu barna með það í huga hvernig ástandið væri hér. Sigríður spurði sig hvort eftirlit með tannheilsu væri ekki á forræði ríkisvaldsins.
Fundi slitið kl. 19:05


