Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 120
120. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 25. nóvember 2009 kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Þorvaldur J. Viktorsson, Styrgerður Jóhannsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Maríanna Jónsdóttir, Íris Heiður Jóhannsdóttir, Haukur Þorvaldsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 119. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Tillaga að gjaldskrá sundlaugar
Haukur fór yfir núverandi gjaldskrá og gerði grein fyrir tillögu að nýrri gjaldskrá.
| Tillaga að | |||||
| Gjaldskrá | gjaldskrá | ||||
| 2009 | 2010 | ||||
| Kr./tími/kort | Kr./tími/kort | ||||
| Stakir tímar - fullorðnir | 350 | 425 | |||
| Stakir tímar - börn | 150 | 170 | |||
| 15 miða kort - fullorðnir | 3.300 | 3.500 | |||
| 15 miða kort - börn | 1.500 | 1.500 | |||
| Árskort - fullorðnir | 25.000 | 25.000 | |||
| Árskort - börn | 10.150 | 10.150 | |||
| Sturtugjald - fullorðnir | 220 | 300 | |||
| Sturtugjald - börn | 100 | 150 | |||
| Leiga á sundf. og handkl. | 260 | 330 |
Skólanefnd samþykkir framangreinda tillögu að gjaldskrá fyrir sundlaugina árið 2010.
3. Skólanámskrá Grunnskólans í Hofgarði
Skólanefnd samþykkir skólanámskrá Grunnskólans í Hofgarði.
4. Framkvæmdir við Lönguhóla
Gerð grein fyrir stöðu málsins og farið yfir teikningar af viðbyggingu fyrir starfsmanna- og þjónusturými. Rætt um hvort minnka mætti viðbyggingu með einhverjum hætti. Einnig spurning um hvort eldhús þyrfti að vera jafn vel tækjum búið ásamt öðrum frágangi í eldhúsi eins og fyrsta kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir. Margrét lagði áherslu á að viðbyggingin verði ekki minnkuð, þetta rými muni allt verða í fullri notkun þegar upp væri komið. Einnig greindi Margrét frá hugmyndum um eldhús, lagði áherslu á einfalda útfærslu sem leiddi til sem minnst kostnaðar. Torfi lagði áherslu á að breytingarnar verði kostnaðarmetnar og þá einnig hvort viðbygging við Krakkakot kæmi til greina sem valkostur. Skólanefnd sammála um að halda áfram á þeirri braut sem þegar hefur verið mótuð, að byggja við Lönguhóla þjónustu- og starfsmannarými. Þá var rætt um efnisval, steinsteypu, timbur eða annað. Íris greindi frá umræðum í foreldraráði um fyrirhugaðar framkvæmdir við Lönguhóla og hefur komið fram mikil ánægja með þær í ráðinu.
5. Úrskurðir mennta- og menningarmálaráðuneytis
Farið yfir úrskurð mennta og menningarmálaráðuneytis, skv. 31. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla að því er tekur til vettvangsferða og úrskurð ráðuneytisins, skv. 5. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla að því er tekur til skólagöngu fósturbarna.
6. Sameiginleg hvatning KÍ og Samb. ísl. sveitarf. Vísað til nefndarinnar af bæjarráði
Í meðfylgjandi bréfi eru skólar og sveitarfélög hvött til að nýta með markvissum hætti niðurstöður rannsókna sem gerðar eru á skólastarfi. Í þessu bréfi er fjallað um TALIS, alþjóðlega rannsókn á stöðu og viðhorfum kennara og skólastjórnenda, MCKinsey skýrsluna um einkenni bestu menntakerfa heims og nýlega rannsókn á stöðu lestrarkennslu í grunnskólum.
7. Átak gegn einelti, vísað til nefndarinnar af bæjarráði
Skólanefnd leggur til að verkefni Heimilis og skóla, átak gegn einelti, verði styrkt. Vísað til skólaskrifstofu. Undir þessum lið var rætt um einelti í grunnskólum sveitarfélagsins og vinnureglum þar að lútandi. Urðu um þetta erfiða mál töluverðar umræður.
8. Önnur mál
Undir þessum lið voru afhentar eftirfarandi reglugerðir:
· Reglugerð nr. 896 um skil og miðlun upplýsinga á milli leik- og grunnskóla.
· Reglugerð nr. 897 um miðlun og meðferð upplýsinga um nemendur í grunnskólum og rétt foreldra til aðgangs að upplýsingum um börn sín.
· Reglugerð nr. 872 um inntak menntunar leik-, grunn- og framhaldsskólakennara.
· Reglugerð nr. 882 um breytingu á reglugerð nr. 656/2009 um skólaakstur.
· Reglugerð nr. 893 um mat og eftirlit í leikskólum um upplýsingaskyldu sveitarstjórna um skólahald.
Fundi slitið kl. 18:25


