Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð Skólanefndar 56
56. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 9. desember 2003 kl. 17:30
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Arnbjörg Stefánsdóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 55. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Fjárhagsáætlun 2004
Greint frá áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2004. Farið var yfir rekstrarramma stofnana og breytingar á þeim á milli funda, áætlanir um framkvæmdir, viðhald húsa og framlög til stofnbúnaðar.
3. Önnur mál
• Greint frá upplýsingum frá skólunum um forföll kennara og úrræði skólans til að sinna kennslu þegar kennari er forfallaður. Fram kom að ekki tekst að kenna allar stundir þegar kennari er forfallaður. Töluverðar umræður urðu um þetta mál og m.a. rætt um hvort þörf sé á forfallakennara (kennurum).
• Greint frá viðræðum við Rannsóknarþjónustu Kennaraháskóla Íslands vegna faglegs mats á leikskólastarfi. Stofnunin er reiðubúin að sjá um úttektina og gæti væntanlega skilað verkinu af sér fyrir páska. Ekki hefur verið gengið frá samningi um úttektina.
• Ekki hefur enn verið ráðið í kennarastöðu í Hafnarskóla vegna væntanlegs fæðingarorlofs í byrjun næsta árs. (Arnbjörg vék af fundi)
4. Einstaklingsmál
Fært í trúnaðarbók. (Engir aðrir viðstaddir en kjörnir nefndarmenn og starfsmaður.)
Fundi slitið kl.19:35


