Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 55
55. fundur
Fundur haldinn Í umhverfisnefnd Hornafjarðar þriðjudaginn 6. febrúar 2006 kl. 17:10 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Sigurlaug Gissurardóttir formaður, Rannveig Einarsdóttir, Þóra V Jónsdóttir, Eyjólfur Guðmundsson og starfsmaður nefndarinnar, Helgi Már Pálsson og Össur Imsland, einnig starfsmaður Búnaðarsambandsins Grétar Már Þorkelsson,
1. Fundargerð síðasta fundar
Undir 4. fundarlið síðasta fundar var rætt um tilnefningar til umhverfisverðlauna fyrir árið 2005, en fundarmenn komust að niðurstöðu með aðstoð tölvupósts. Niðurstöður nefndarinnar voru þær að Skinney Þinganes voru verðlaunuð fyrir snyrtilegan frágang og sinn þátt í umhverfismálum. Aðrir sem hlutu tilnefningar voru leikskólar og grunnskólar sveitarfélagsins, Háskólasetrið á Hornafirð, Lovísa Eymundsdóttir og ábúendur á Hala í Suðursveit.
Engar athugasemdir gerðar við síðustu fundargerð.
2. Heyrúlluplast / brotajárn, möguleikar og fyrirkomulag
Grétar Þorkelsson starfsmaður Búnaðarsambands Suðurlands mætti á fundinn og gerði grein fyrir þeim möguleikum sem eru til staðar í endurvinnslu og förgun á heyrúlluplasti og brotajárni. Hvað varðar heyrúlluplast þá virðist það ekki henta að keyra plastið um langar leiðir og Búnaðarsamband Suðurlands er að leita leiða til að gera þetta á einhvern hagkvæmari hátt til framtíðar. Nauðsynlegt er að vinna þetta í góðu samstarfi við sveitarfélögin.
Nefndin tekur undir þessi sjónarmið. Möguleiki er á að sækja um styrkt frá Bændasamtökunum vegna Umhverfis og fegrunarátaks í sveitum fyrir lögbýli og eyðibýli til að farga brotajárni.
Nefndin hvetur sveitarfélagið til að taka þátt í því með eigendum lög- og eyðibýla að standa myndarlega saman að þessu átaki.
3. Vatnajökulsþjóðgarður
Hjalti gerði grein fyrir afstöðu sveitarfélagsins gangvart væntanlegum Vatnajökulsþjóðgarði. Einnig kom hann inná umfjöllun og stefnu sveitarstjórnar vegna jarðarinnar Flatey á Mýrum.
Nefndin hvetur sveitarstjórn Hornafjaraðar til þess að beita sér fyrir að fram fari heilstætt mat á svæðinu sunnan Vatnajökuls m.t.t verndargildis og uppbyggingar með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
4. Staðardagskrá 21
Helgi fór yfir umhverfisáætlun, markmið og leiðir og hvernig þeirri vinnu hefur miðað áfram miðað við gildandi framkvæmdaáætlun. Farið var yfir stefnu Sveitarfélagsins í umhverfismálum samkvæmt Staðardagskrá 21, en ljóst er að hægt miðar. Stærstu málaflokkarnir eru, fráveitu- og sorpmál, gæði neysluvatns og umhverfisfræðsla. Til þess að sveitarfélagið geti staðið undir nafni hvað varðar Hreinn Hornafjörður, fagur Hornafjörður þurfa þessir málaflokkar að vera í stöðugri vinnslu og fjármagn til þeirra má ekki skorta. Í ljósi nýrra upplýsinga hvað varðar kostnaðar við Green Globe telur nefndin rétt að sveitarstjórnin endurskoði ákvörðun sína um samvinnu við sveitarfélög vestan Skeiðarársands í verkefnavinnunni sem er að hefjast.
5. Aðalskipulag Sveitarfélagsins – endurskoðun
Helgi fór yfir kafla 3.6 umhverfismál í Aðalskipulagi Hornafjarðar. Þessi liður verður tekinn aftur fyrir á næsta fundi nefndarinnar Eyjólfur Guðmundsson vék af fundi undir þessum lið.
6. Álaugareyjarklettarnir á Höfn – merkilegir innviðir forns eldfjalls í hjarta bæjarins.
Frestað til næsta fundar.
7. Önnur mál
Rætt var um svæði við Lyngey á vegum Litboltafélagsins og svæði við Drápskletta á vegum Mótor Kross. Frestað til næsta fundar.
Fundi slitið kl. 20.15
Sigurlaug Gissurardóttir Helgi Már Pálsson Rannveig Einarsdóttir Össur Imsland Þóra V Jónsdóttir Eyjólfur Guðmundsson


