Gamla - Umhverfisnefnd
Fundargerð umhverfisnefndar 94
94. fundur
Fundur í umhverfisnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, þriðjudaginn 9. febrúar 2010 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurlaug Gissurardóttir, Valdemar Einarsson, Þórey Bjarnadóttir, Miralem Haseta, Haukur Ingi Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200909035 - Breyting á Aðalskipulagi Hornafjarðar, Vatsveita, hitaveita og þjóðvegur í þéttbýli
Lögð fram til kynningar og umsagnar, að ósk Hauks Inga, drög að Matslýsingu vegna Hitaveitu í Hoffelli og vatnsveitu í Grjótbrú.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við framlögð drög og felur starfmanni að senda Skipulagsstofnun matslýsinguna til meðferðar.
2. 200912021 - Endurskoðun auglýsingar fyrir fólkvang í Óslandi
Endurskoðun auglýsingar fyrir fólkvang í Óslandi.
Haukur gerði grein fyrir málinu, verið er að vinna að lokafrágangi uppsetningar á nýrri auglýsingu. Umhverfisnefnd er sammála um að athugasemd eitt og tvö frá Náttúrufræðistofnun Íslands sé til bóta fyrir auglýsinguna en bendir á að ekki er verið að breyta á nokkurn hátt mörkum fólkvangsins. Umhverfisnefnd óskar eftir því að fá að fylgjast áfram með málinu.
3. 200705114 - Önnur mál
Valdemar óskaði eftir því að skoðað verði miðbæjarsvæði á næsta fundi.
Sigurlaug óskaði eftir því að auglýst verði eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2009 og mótað verði dagsskrá fyrir dag umhverfisins í apríl n.k. Starfsmanni falið að óska eftir tilnefningum og vinna að dagsskrá umhverfisþings.
Sigurlaug óskaði eftir því að tekin verði upp til umfjöllunar reglur um umgengni utanhúss á næsta fundi nefndarinnar.


